Lyfjaver og Öldrunarheimili Akureyrar hafa skrifað undir samstarfssamning um þróunarverkefni fyrir þróun rafrænna lausna fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili.
Fram kemur í fréttatilkynningu að tilgangurinn sé að stórbæta lyfjaumsýslu og nýtingu mannafla en verkefnið er unnið í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið Þulu – Norrænt hugvit, á Akureyri.
„Verkefninu hefur miðað vel áfram og verður næsti áfangi innleiddur í tveimur skrefum núna í sumar. Að þeim áfanga loknum verður öll skráning á eftirritunarskyldum lyfjum á rafrænu formi sem er mikið framfaraskref frá því sem nú er,“ segir enn fremur.