Tiger innkallar flautu

Þessar flautur hafa verið innkallaðar.
Þessar flautur hafa verið innkallaðar. Ljósmynd/Neytendastofa

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Tiger vegna innköllunar á flautu. Við reglulegt eftirlit kom í ljós að hlutinn sem býr til hljóðið í flautunni getur losnað ef togað eða ýtt er í hann.

Hluturinn er smár og því getur stafað köfnunarhætta af honum. Engin atvik hafa þó komið upp en þetta kom í ljós við reglulegt eftirlit.

Hafi einhver keypt þessa vöru er hann vinsamlegast beðinn um að skila vörunni í verslunina Tiger þar sem varan verður endurgreitt eða inneignarnóta gefin út. Kassakvittun er óþörf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK