Harpa besta ráðstefnuhús Evrópu

Harpa hlaut ferðaverðlaun tímaritsins Business Destinations sem besta ráðstefnuhús Evrópu árið 2016.

Sigurvegarinn í þessum flokki árið 2015 var ráðstefnuhúsið Alfândega do Porto í Portúgal. Þetta sama ár var fríhöfnin í Leifstöð valin besta flugvallarfríhöfnin. Business Destinations er ársfjórðungslegt ferðatímarit og vefsvæði þar sem áhersla er lögð á efni sem höfðar til viðskiptaferðamanna og þeirra sem starfa við slíka ferðamennsku.

Business Destinations fjallaði um Hörpu í vetrarhefti sínu 2015 og Harpa var í kjölfarið tilnefnd til verðlaunanna. Greinina má lesa hér.

Ferðaverðlaun Business Destinations taka til allra helstu þátta viðskiptaferðalaga, allt frá flugvöllum og ráðstefnuhúsum til gæðahótela og íbúðagistingar. Verðlaunahafana velja viðskiptaferðamenn frá öllum heimshornum, fjölbreyttur hópur stjórnenda úr ferðaiðnaði og frá stórfyrirtækjum, aðilar úr ráðstefnu- og hvataferðageiranum og aðrir sem ferðast vinnu sinnar vegna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK