Ingibjörg Ösp til Samtaka iðnaðarins

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, nýráðinn forstöðumaður mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum …
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, nýráðinn forstöðumaður mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum iðnaðarins. Mynd/Samtök iðnaðarins

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mennta- og mannauðsmála Samtaka iðnaðarins. Ber hún þar ábyrgð á að vinna að og framfylgja stefnu SI í mennta- og mannauðsmálum þar sem markmiðið er að vinna að því að nægt framboð sé af hæfu starfsfólki fyrir hinn fjölbreytta iðnað í landinu. 

Ingibjörg Ösp leiddi Menningarhúsið Hof á Akureyri frá opnun til ársloka 2014. Hún gegndi starfi framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar á árunum 2015–2016. Áður var hún framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar á árunum 2003–2005 og markaðsstjóri KEA frá 2005–2008. 

Í tilkynningu frá SI segir að Ingibjörg Ösp sé með MSc-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskólanum á Akureyri og fjallaði hún um útvistun í opinberri stjórnsýslu í meistaraverkefni sínu. Hún er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá rekstrardeild Háskólans á Akureyri. Áður öðlaðist hún reynslu af kennslu auk þess sem hún hefur komið að mótunarstarfi í skóla- og menntamálum.

„Það er ánægjulegt að fá Ingibjörgu Ösp í hóp starfsmanna SI. Menntun og mannauður eru einn af hornsteinum stefnu SI og því mikilvægt að fá til liðs við okkur öflugan sérfræðing til að stýra þessum málaflokki innan okkar raða,“ er haft eftir Almari Guðmundssyni, framkvæmdastjóri SI, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK