H&M opnar tvær verslanir á Íslandi

H&M opnar tvær verslanir í Smáralind og í miðbæ Reykjavíkur …
H&M opnar tvær verslanir í Smáralind og í miðbæ Reykjavíkur á næstu tveimur árum. mbl.is

Reginn hf. og dótturfélag þess, Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf., hafa undirritað leigusamninga við  dótturfélag H&M Hennes & Mauritz AB (publ.) um húsnæði undir tvær verslanir undir merkjum H&M. 

Samningarnir ná til tveggja staðsetninga. Annars vegar verslunar í Smáralind og hins vegar í miðbæ Reykjavíkur (á Hafnartorgi). Verslanirnar munu opna á árunum 2017 og 2018.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Það er mat Regins að tilkoma H&M í Smáralind muni hafa mikil og jákvæð áhrif á verslunarmiðstöðina og verða mikilvægt skref í endurskipulagningu Smáralindar m.a. með styrkingu leigutekna til framtíðar. Jafnframt er það mat Regins að samningurinn um verslun H&M á Hafnartorgi verði stór liður í uppbyggingu öflugrar verslana- og þjónustueiningar í miðbæ Reykjavíkur,“ segir í tilkynningunni.

„Samhliða gerð framangreindra samninga er unnið að fjölmörgum nýjum leigusamningum í Smáralind og Hafnartorgi. Nýir samningar verða kynntir þegar þeir hafa verið fastsettir.  Frekari kynning á verkefnunum mun fara fram á komandi mánuðum,“ segir einnig í tilkynningunni.

„Reginn hefur áður kynnt fyrirhugaðar fjárfestingar í tengslum við endurskipulagningu Smáralindar og uppbyggingu Hafnartorgs. Þá er vísað til fréttatilkynningar dags. 28. ágúst 2014 og kynningar dags. 29. maí 2015. Arðsemi nýfjárfestinga í tengslum við ofangreind verkefni er í samræmi við fjárfestingastefnu félagsins.“

Frétt mbl.is: Engar formlegar viðræður við H&M

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK