Hagnaðist um 1,8 milljarða

Össur er alþjóðlegt fyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur …
Össur er alþjóðlegt fyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sala Össurar hf. á öðrum ársfjórðungi nam 139 milljónum Bandaríkjadala (17,2 milljörðum íslenskra króna) og nam söluvöxtur frá fyrra ári 10%, þar af 5% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynd.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en ársfjórðungsuppgjörið var birt nú í kvöld.

Hagnaður fyrirtækisins nam 15 milljónum Bandaríkjadala (1,8 milljörðum íslenskra króna) eða 10% af sölu. Jókst hagnaður um 10% ef leiðrétt er fyrir einskiptiskostnaði. EBITDA án einskiptiskostnaðar nam 30 milljónum Bandaríkjadala (3,7 milljörðum íslenskra króna) eða 22% af sölu.

„Við erum ánægð með árangurinn á öðrum ársfjórðungi, sérstaklega í ljósi samanburðar við góðan árangur á sama tíma í fyrra. Reksturinn gekk mjög vel og skilaði góðum hagnaði. Söluvöxtur í Ameríku var góður og gekk sala á stoðtækjum einkar vel. Eins og við bjuggumst við var söluvöxtur í EMEA góður eftir slakan fyrsta fjórðung. Sala á spelkum og stuðningsvörum var drifin áfram af hágæðavörum og sala á stoðtækjum var drifin áfram af bionic-vörum og vörunýjungum. Í apríl fórum við inn á nýjan markað með kaupum á Touch Bionics. Touch Bionics eru fremst í heiminum í þróun og framleiðslu á gervihöndum og með kaupunum getum við boðið upp á enn betra vöruúrval til viðskiptavina okkar,“ segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf., í tilkynningu fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK