Úrskurðarnefnd stöðvar framkvæmdir

Guðmundur I. Ásmundsson, forstjóri Landsnets.
Guðmundur I. Ásmundsson, forstjóri Landsnets. mbl.is/Styrmir Kári

Stöðvun eins og þessi hefur mikil áhrif á framkvæmdirnar og mögulega stöndum við frammi fyrir því að geta ekki staðið við skuldbindingar okkar vegna Bakka og Þeistareykjavirkjunar,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi á föstudag tvo úrskurði um stöðvun framkvæmda vegna ákvarðana sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir Þeistareykjalínu 1 og Kröflulínu 4.

Úrskurðirnir eru til bráðabirgða á meðan nefndin fjallar um kærur Landverndar vegna útgáfu framkvæmdaleyfanna. „Framkvæmdirnar hafa farið í gegnum alla lögbundna ferla er snúa að umhverfismati og skipulagi. Í tilviki Þeistareykjalínu 1 hefur verið breið sátt um verkefnið og samið við alla landeigendur á línuleiðinni. Fyrir framkvæmdaraðila eins og Landsnet er mikilvægt að ferlarnir sem fyrirtækið starfar eftir séu skýrir. Það hlýtur að vera umhugsunarefni ef stjórnsýslan er orðin með þeim hætti að verið sé að fjalla um grundvallarþætti umhverfismatsins og fyrri stjórnsýsluákvarðanir svo seint í ferlinu.“

Guðmundur segir í fréttatilkynningu frá Landsneti að þótt mismunandi skoðanir séu uppi um túlkanir laga og afturvirkni breytinga á þeim þá sé markmið laganna áfram að dregið verði úr áhrifum framkvæmdanna á umhverfið og að umhverfismatið verði unnið á faglegum forsendum. „Hefur öll sú mikla vinna sem fram hefur farið miðað að því. Landsnet hefur nú þegar óskað eftir flýtimeðferð hjá úrskurðarnefndinni.”

Guðmundur I. Ásmundsson, forstjóri Landsnets.
Guðmundur I. Ásmundsson, forstjóri Landsnets. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert