Óli Kristján hættur hjá 365

Óli Kristján Ármannsson.
Óli Kristján Ármannsson.

Blaðamaðurinn Óli Kristján Ármannsson hefur hafið störf sem ráðgjafi í almannatengslum og útgáfu hjá KOM ráðgjöf. Síðustu tólf ár hefur Óli Kristján starfað sem blaðamaður á Fréttablaðinu.

Í fréttatilkynningu frá KOM kemur fram að á Fréttablaðinu hefur Óli meðal annars sinnt vaktstjórn og verið í hópi leiðarahöfunda blaðsins síðustu ár, auk þess að sinna fréttaskrifum.  

Á Fréttablaðinu hélt Óli Kristján síðustu misseri utan um fréttir af vinnumarkaði, en skrifaði um árabil fréttir af viðskipta- og efnahagslífi og gegndi um tíma stöðu viðskiptaritstjóra blaðsins. Hann var jafnframt umsjónarmaður Markaðarins, fylgirits Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagslíf.

Áður hefur Óli Kristján einnig starfað sem blaðamaður í innlendum fréttum á Morgunblaðinu og ritstýrt tímaritinu Tölvuheimi – PC World á Íslandi 2002 til 2004. Þá hefur Óli Kristján setið í stjórn Blaðamannafélags Íslands síðustu átta ár, þar af sem varaformaður frá 2013.

Óli Kristján lauk námi í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands 2001 og sat árin 2006 og 2007 námskeið í rannsóknarblaðamennsku og ritstjórn í Háskólanum í Reykjavík. BA-námi í ensku frá Háskóla Íslands lauk Óli árið 1994. Óli Kristján býr á Selfossi með eiginkonu sinni Guðfinnu Gunnarsdóttur framhaldsskólakennara og börnum þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK