Milljarðs fjármögnun hjá Meniga

Benedikt Orri Einarsson, fjármálastjóri Meniga.
Benedikt Orri Einarsson, fjármálastjóri Meniga. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga lauk á fyrri helming ársins fjármögnun að fjárhæð 7,3 milljónum evra. Fjárhæðin jafngildir um einum milljarði íslenskra króna, að því er kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Fjármögnunin fór fram með aukningu hlutafjár frá núverandi fjárfestum undir forystu Frumtaks og hollenska fjárfestingafélagsins Velocity Capital sem og lánsfé. Willem Willemstein eigandi og framkvæmdastjóri Velocity Capital hefur tekið sæti í stjórn Meniga í kjölfarið af fjármögnuninni.

Þróa heimilisfjármálalausnir

„Meniga er leiðandi á heimsvísu í þróun heimilisfjármálalausna fyrir banka og fjármálastofnanir sem notaðar eru í næstu kynslóð netbanka til að stórbæta þjónustu við viðskiptavini. Meðal viðskiptavina Meniga eru nokkrir stærstu banka heims en þeirra á meðal eru Santander, mBank, Intesa Sanpaolo og ING Direct. Þannig drífa hugbúnaðarlausnir Meniga áfram netbanka í um 20 löndum með yfir 35 milljónir virka notendur,“ segir í tilkynningunni.

Vilja efla sókn á erlenda markaði

Þar segir einnig að fjármögnuninni sé ætlað að efla enn frekar sókn fyrirtækisins á erlenda markaði en auk áherslu á heimilisfjármálahugbúnað hefur Meniga meðal annars þróað neyslutengt tilboðskerfi (e. Card Linked Offers).

„Tilboðskerfinu er ætlað að hjálpa einstaklingum og fjölskyldum að spara með sérsniðnum tilboðum ásamt því að hjálpa fyrirtækjum að nýta betur markaðsfé sitt með því að ná til réttra viðskiptavina. Íslenskum notendum Meniga stendur til boða að nýta sér slík tilboð, sem ganga undir nafninu Kjördæmi á Íslandi, og aðrar lausnir Meniga gjaldfrjálst á vef fyrirtækisins www.meniga.is eða í Meniga appinu fyrir iPhone and Android síma.“

Um 100 starfsmenn í þremur löndum

Benedikt Orri Einarsson, fjármálastjóri Meniga, segir að fyrirtækið hafi vaxtið ört frá stofnun þess árið 2009. Starfsmenn þess séu nú um 100 talsins. Flestir starfa þeir á Íslandi en fyrirtækið er einnig með skrifstofur í London og Stokkhólmi.

„Fjármögnunin gefur Meniga tækifæri til að halda áfram þróun á hugbúnaði í tengslum við neyslutengd tilboð ásamt því að styrkja grunnrekstur félagsins og áframhaldandi sókn á erlenda markaði,“ segir Benedikt Orri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK