FKA harmar 0% kynjafjölbreytileika

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) harmar að 0% kynjafjölbreytileiki sé nú meðal forstjóra kauphallarfyrirtækja.

Greint var frá því í morgun að stjórn VÍS og Sigrún Ragna Ólafs­dótt­ir, for­stjóri fé­lags­ins, hefðu komist að samkomulagi í gær um að hún léti af störf­um hjá fé­lag­inu. Þá var Jakob Sig­urðsson ráðinn í hennar stað sem forstjóri VÍS.

Í tilkynningu frá FKA kemur fram að það sé verulegt umhugsunarefni fyrir atvinnulífið að eina konan sem stýrt hafi fyrirtæki innan Kauphallar hafi nú látið af störfum. Félagið vill beina þeim tilmælum til eigenda hlutabréfa á hlutabréfamarkaði, svo sem lífeyrissjóða og annarra á markaði, að varðveita markmið atvinnulífsins að byggja upp fjölbreytan stjórnendahóp.

„Um leið og ég óska Jakobi Sigurðssyni til hamingju með nýja starfið þá beini ég þeim tilmælum til hans og annarra forstjóra og stjórnenda að byggja upp fjölbreytan og öflugan stjórnendahóp. Það er verulegt umhugsunarefni fyrir atvinnulífið hversu einsleitur forstjórahópur landsins er,“ er haft eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, formanns FKA, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK