Gaf út skuldabréf upp á 500 milljónir evra

Landsbankinn mun nýta andvirði útgáfunnar til þess að fyrirframgreiða óhagkvæmari …
Landsbankinn mun nýta andvirði útgáfunnar til þess að fyrirframgreiða óhagkvæmari erlenda fjármögnun ásamt því að styrkja enn frekar lausafjárstöðu bankans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsbankinn hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, að jafnvirði um 65 milljarða króna. Skuldabréfin eru til 4½ árs með gjaldaga 15. mars 2021. Þau bera fasta 1,625% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 190 punkta álagi ofan á millibankavexti í evrum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbankanum.

Þar kemur fram að skuldabréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta á Norðurlöndum, Bretlandi, meginlandi Evrópu og víðar. Alls bárust tilboð fyrir rúman 1,5 milljarða evra sem nemur þrefaldri umframeftirspurn frá yfir 130 fjárfestum. Skuldabréfin eru gefin út undir Euro Medium Term Note (EMTN) skuldabréfaramma Landsbankans og verða bréfin skráð í kauphöllina á Írlandi þann 15. september næstkomandi.

Landsbankinn mun nýta andvirði útgáfunnar til þess að fyrirframgreiða óhagkvæmari erlenda fjármögnun ásamt því að styrkja enn frekar lausafjárstöðu bankans.  Umsjónaraðilar útboðsins voru Barclays, Citigroup og Deutsche Bank.

 „Útgáfan í dag er afar ánægjulegur áfangi. Bankinn lækkar verulega fjármagnskostnað sinn með þessari útgáfu sem er til lengri tíma en fyrri útgáfur,“ er haft eftir Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans í fréttatilkynningunni.

„Mikill áhugi fjárfesta undirstrikar aukna tiltrú á Landsbankanum á erlendum fjármálamörkuðum og ánægju með þá jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað í íslensku efnahagsumhverfi. Hagstæðari kjör og betra aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum gerir bankann enn betur í stakk búinn til þess að vera í fararbroddi í þjónustu við íslenskt viðskiptalíf.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK