Breytingar hjá Íslandssjóðum

Kjartan Smári hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði, en undanfarin níu …
Kjartan Smári hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði, en undanfarin níu ár hefur hann starfað sem forstöðumaður hjá VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, þar sem hann hefur leitt fagfjárfestasvið, lífeyrissvið og fjármögnun sérhæfðra fjárfestinga.

Kjartan Smári Höskuldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða. Kjartan Smári hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði, en undanfarin níu ár hefur hann starfað sem forstöðumaður hjá VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka, þar sem hann hefur leitt fagfjárfestasvið, lífeyrissvið og fjármögnun sérhæfðra fjárfestinga. Kjartan Smári er með MA gráðu í alþjóðaviðskiptum frá UAB háskólanum í Barcelona og BA gráðu í Sálfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka.

Íslandssjóðir hf. er sérhæft félag á sviði eignastýringar og sjóðastýringar. Félagið var stofnað árið 1994 og starfrækir breitt úrval verðbréfa- og fjárfestingasjóða. Fimmtán sérfræðingar í eignastýringu starfa hjá Íslandssjóðum og um 100 milljarðar króna eru ávaxtaðir í sjóðum félagsins auk sérhæfðra fjárfestinga. Aukin áhersla verður framvegis lögð á sérhæfðar fjárfestingar, svo sem fasteignaverkefni, lánasjóði og framtakssjóði og eru þessar breytingar liður í því.

Þá hefur Jóhannes Hauksson tekið við starfi forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum og er staðgengill framkvæmdastjóra. Jóhannes er með langa reynslu af fjárfestingum, fjármögnun fyrirtækja, verkefnafjármögnun og fjárhagslegri endurskipulagningu. Jóhannes er framkvæmdastjóri Akurs fjárfestinga slhf., framtakssjóðs í stýringu Íslandssjóða. Áður var Jóhannes forstöðumaður Fyrirtækjalausna, deildar sem annaðist fjárhagslega endurskipulagningu í Íslandsbanka árin 2010-2013.

Jónas Þór Jónasson hefur verið ráðinn sjóðsstjóri í sérhæfðum fjárfestingum Íslandssjóða. Jónas Þór er með yfirgripsmikla reynslu af fasteignafjárfestingum, fasteignaþróun og uppbyggingu allt frá árinu 1999 þegar Jónas hóf störf hjá Þyrpingu (nú Reitir) og síðar hjá Klasa hf. Meðal fasteigna- og þróunarverkefna sem Jónas hefur unnið að má nefna Skuggahverfi 101, Kringluna, Norðurbakkann í Hafnarfirði, miðbæ Garðabæjar og Litlatún verslunarhverfi, Kauptún, Hotel Reykjavík Centrum, Hilton Canopy, Fontana Spa, Hádegismóa og Höfðahverfi í Elliðaárvogi.

Hrönn Greipsdóttir hefur verið ráðin sjóðsstjóri í sérhæfðum fjárfestingum Íslandssjóða. Hrönn mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarfélagsins Eldeyjar TLH hf. sem fjárfestir í ferðaþjónustu og stýrt er af Íslandssjóðum.  Hrönn hefur yfirgripsmikla reynslu á sviði ferðaþjónustu og fjármála en hún var m.a. framkvæmdastjóri Hótel Sögu ehf. og sat í stjórn SAF um áraskeið. 

Haukur Skúlason hefur verið ráðinn sjóðsstjóri í sérhæfðum fjárfestingum Íslandssjóða. Haukur hefur viðamikla reynslu af innlendum fjármálamarkaði og fasteignafjárfestingum en áður en Haukur gekk til liðs við VÍB fyrr á þessu ári starfaði hann í fimm ár við umsýslu fjárfestingaeigna Tryggingamiðstöðvarinnar. Haukur settist í stjórn fasteignafélagsins FAST-1 við stofnun þess árið 2012 og gegnir nú stjórnarformennsku í félaginu, en FAST-1 er fasteignafélag í stýringu Íslandssjóða með rúmlega 22 milljarða í heildareignir.

Íslandssjóðir hf. er sjálfstætt dótturfélag Íslandsbanka. Stjórnarformaður félagsins er Tanya Zharov, lögfræðingur en aðrir stjórnarmenn eru Kristján Björgvinsson, löggiltur endurskoðandi, Bolli Héðinsson, háskólakennari og Jensína Kristín Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK