Kosningabjórinn kominn

Þrasi er 5% bjór.
Þrasi er 5% bjór.

Í dag setti næst minnsta bjórverksmiðja Íslands The Brothers Brewery í Vestmannaeyjum bjórinn Þrasa í sölu. Bjórinn Þrasi kemur á markað núna rétt rúmri viku fyrir kosningar sem sérstakur kosningabjór. Þrasi er bjór af týpunni pale ale og er 5% alkahól innihald í honum.

„Við í The Brothers Brewery erum ekki nema 150 lítra bjórverksmiðja í dag og getum því brugðist hratt við og sett á markað í takmörkuðu upplagi bjóra þegar eitthvað skemmtilegt er í gangi í okkar litla samfélagi. Í kringum EM í fótbolta gerðum við bjórinn Heimi og núna gerum við sérstakan kosningabjórm“ er haft eftir Kjartani Vídó sölu- og markaðsstjóra The Brothers Brewery í tilkynningui.

Vörumerki Þrasa er hannað af Gunnari Júlíussyni hjá Gunnar Júl art og var hugsunin að ná fram þeirri stemningu sem að „virkir í athugasemdum“ upplifa af stjórnmálamönnum á Íslandi.

„Eintómt þras og mas og ekkert nema bras,“ eins og segir í tilkynningu.

The Brothers Brewery fékk framleiðsluleyfi í byrjun árs 2016 og frá þeim tíma hafa þeir m.a. unnið 1.verðlaun fyrir bjór ársins 2016 á Bjórhátíðinni á Hólum og einn dýrasti bjór íslandssögunnar Togarinn kemur frá The Brothers Brewery.

Þrasi verður til sölu í takmörkuðu upplagi á eftirfarandi sölustöðum frá og með deginum í dag. Kaldi Bar Reykjavík, Micro bar Reykjavík, Bjórgarðurinn Reykjavík, Ölhúsið – Ölstofa Hafnarfjarðar, Bjórsetur Íslands Hólum í Hjaltadal og á veitingastaðnum Einsi Kaldi í Vestmannaeyjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK