22% minni hagnaður milli ára

Fjarskipti rekur Vodafone.
Fjarskipti rekur Vodafone. mbl.is/Ómar

Tekjur Fjarskipta hf., eiganda Vodafone á Íslandi, námu 3,44 milljörðum á þriðja ársfjórðungi og standa í stað m.v. þriðja ársfjórðung 2015. Hagnaðurinn nam 391 milljón króna, sem er 22% lækkun milli ára.

Framlegð tímabilsins nam 1,66 milljarði og var það lækkun um 5% miðað við sama tímabil í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 927 milljónum króna, sem var lækkun um 10% milli ára. 

EBITDA-horfur fyrir árið hafa nú verið færðar niður og eru áætlaðar í kringum 3,1 milljarð fyrir árið 2016.

Í tilkynningu er vitnað í forstjóra Fjarskipta, Stefán Sigurðsson sem segir reksturinn á þriðja ársfjórðungi hafa orðið fyrir áhrifum af flutningum félagsins, samkeppni og verðlækkunum á farsímamarkaði á fyrri hluta ársins. 

„Einskiptiskostnaður vegna húsnæðismála nam 50 milljónum króna, einkum í tengslum við flutninga og skil á eldri höfuðstöðvum í Skútuvogi en einnig undirbúning nýrra höfuðstöðva við Suðurlandsbraut. Lækkun í framlegð á fjórðungnum kemur einnig að nokkrum hluta til vegna einskiptisliða við kaup á efni til styrkingar sjónvarpsþjónustu félagsins og gefur því ekki góða mynd af framtíðarþróun félagsins. Meðaltekjur af viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, lækkuðu og höfðu áhrif á tekjuvöxt á fjórðungnum þrátt fyrir góða fjölgun viðskiptavina það sem af er árs. Áhrif hagræðingaraðgerða sem hófust á fyrsta ársfjórðungi héldu áfram að skila árangri. Aukning launakostnaðar félagsins á fjórðungnum á milli ára er t.a.m. innan við helmingur af hækkun launavísitölu á ársgrundvelli,“ er haft eftir Stefáni.

Þá gerir fyrirsjáanlegur einskiptiskostnaður vegna skoðunar félagsins á mögulegum kaupum á ljósvaka- og fjarskiptahluta 365 að verkum að félagið lækkar nú EBITDA-horfur þannig að þær verða nú í kringum 3,1 milljarður fyrir árið.

Fyrri frétt mbl.is: Kaupa ljós- og fjarskiptahluta 365 

Áhrif kjarasamningshækkana, lækkunar verðs á farsímamarkaði á Íslandi og Færeyjum og húsnæðismála eru metin yfir 400 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem hafði á endanum áhrif á EBITDA-horfur ársins.

„Þrátt fyrir lækkun EBITDA horfa er útlit fyrir að ýmis verkefni sem fyrirtækið hefur unnið að muni hafa jákvæð áhrif á árinu 2017. Lægri starfsmannakostnaður mun hafa jákvæð áhrif á næsta ári, húsnæðiskostnaður félagsins mun dragast saman frá byrjun árs og hagræðing í tengslum við Sendafélagið mun hafa aukin áhrif þegar líður á árið. Horfur félagsins fyrir árið 2017 verða kynntar í heild sinni þegar þær liggja fyrir. 

Félagið vinnur enn að áreiðanleikakönnun á ljósvakamiðlum og fjarskiptastarfsemi 365. Gert er ráð fyrir niðurstöðu í þeim viðræðum á fjórðungnum,“ er haft eftir Stefáni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK