75% aukning á Keflavíkurflugvelli

Allt bendir til að ferðamönnum sem fara munu um Keflavíkurflugvöll í janúar næstkomandi muni fjölga um 75% frá því sem reyndin varð í janúar síðastliðnum. Þetta sýna áætlanir Isavia sem á og rekur flugvöllinn.

Björn Óli Hauksson segir að þetta sýni meðal annars að meiri dreifing sé að verða á þeim fjölda sem fer um flugvöllinn yfir árið en verið hefur. Þannig sýna tölur fyrirtækisins að sá fjöldi sem fór um völlinn í september síðastliðnum hafi verið nánast sá sami og í júní í fyrra.

Ítarlegt viðtal við Björn Óla er að finna í ViðskiptaMogga sem kemur út í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK