3% samdráttur vegna viðskiptabanns

Í Bolungarvík. Útgefin leyfi til framleiðslu fiskeldis eru mest á …
Í Bolungarvík. Útgefin leyfi til framleiðslu fiskeldis eru mest á Vestfjörðum og Vesturlandi en þar eru leyfi fyrir 21.698 tonna ársframleiðslu. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ísland situr í 20. sæti á lista yfir stærstu fiskveiðiþjóðir heims miðað við árið 2014 með um 1,4% hlutdeild á heimsvísu. Ísland hefur færst neðar á þessum lista síðustu ár þar sem aðrar þjóðir hafa aukið veiðar sínar umfram Ísland. Þetta kemur fram í skýrslu greiningardeildar Íslandsbanka um sjávarútveginn.

Deildin telur að útflutningur sjávarafurða muni taka við sér á seinni helmingi ársins, ekki síst vegna aukinna aflaheimilda í þorski. Þá er talið að útflutningur muni dragast saman um 1% á árinu 2016 en gert er ráð fyrir ríflega 4% aukningu í útflutningi sjávarafurða á árinu 2017 og rúmlega 3% aukningu árið 2018.

Mest veitt af loðnu en þorskurinn verðmætastur

Heildarafli á síðasta ári var 1.319 þúsund tonn og jókst aflinn um 22,5% frá árinu 2014. Mest var veitt af loðnu á árinu eða um 337 þúsund tonn og jókst loðnuaflinn um 218% frá árinu 2014. Aflaverðmæti ársins 2015 nam rúmlega 151 milljarði króna sem er 9,2% aukning frá árinu 2014 miðað við fast verðlag.

Þorskur er enn langstærstur þegar kemur að aflaverðmæti og nam aflaverðmæti hans tæpum 61 milljörðum króna á árinu 2015 eða sem nemur 40,3% af heildarverðmæti aflans. Verðmætaaukning þorsks nam 13% sem er 10 prósentustigum umfram aukningu í magni og hefur því verðmæti á hvert tonn aukist milli ára.

Þorskur var verðmætasta útflutningstegundin á síðasta ári en þá námu útflutningsverðmæti hans 105 milljörðum króna. Er það um 38% af útflutningsverðmæti sjávarafurða.

Þorskur er enn langstærstur þegar kemur að aflaverðmæti og nam …
Þorskur er enn langstærstur þegar kemur að aflaverðmæti og nam aflaverðmæti hans tæpum 61 milljörðum króna á árinu 2015 eða sem nemur 40,3% af heildarverðmæti aflans. mbl.is/ÞÖK

Samdráttur tengdur við viðskiptabann

Útflutt magn sjávarafurða á árinu 2015 nam tæpum 632 þúsund tonnum og er það um 3% lægra en árið 2014 og 83 þúsund tonnum undir langtíma meðaltali. Þessi samdráttur í útflutningi sjávarafurða milli ára skýrist einna helst af viðskiptabanni Rússlands. Þrátt fyrir þetta námu verðmæti útflutnings á árinu 2015 um 265 milljörðum króna sem er tæpum 17 milljörðum króna meira en á árinu 2014 miðað við verðlag ársins 2015.

Tekjur sjávarútvegsfélaga á árinu 2015 námu 275 milljörðum króna og jukust um 9 milljarða króna á föstu verðlagi eða um 3,3%. Skýrist þessi vöxtur í tekjum af auknum loðnuveiðum og auknu verðmæti þorskaflans vegna verðhækkunar á erlendum mörkuðum.

Frá Rauða torginu. Útflutt magn sjávarafurða á árinu 2015 nam …
Frá Rauða torginu. Útflutt magn sjávarafurða á árinu 2015 nam tæpum 632 þúsund tonnum og er það um 3% lægra en árið 2014 og 83 þúsund tonnum undir langtíma meðaltali. Þessi samdráttur í útflutningi sjávarafurða milli ára skýrist einna helst af viðskiptabanni Rússlands. AFP

18% til Bretlands

Í niðurstöðum skýrslunnar er bent á að gengi krónunnar hafi styrkst um 17% frá upphafi árs og 26% frá upphafi síðastliðins árs gagnvart viðskiptaveginni gengisvísitölu. Hefur gengi krónunnar styrkst mest gagnvart bresku pundi eða um 41% frá upphafi árs. Bretland er eitt af stærstu viðskiptalöndum Íslands og fara um 18% af heildarútflutningsverðmæti sjávarafurða til Breta. Hefur því gengislækkun pundsins gagnvart krónunni talsverð áhrif á utanríkisviðskipti.

Norðmenn eru stærstir í fiskeldi í Evrópu með um 45% hlutdeild. Ísland situr í 25. sæti á meðal fiskeldisþjóða í Evrópu með 8 þúsund tonn eða um 0,3% af heildarfiskeldi álfunnar.

Útflutningsverðmæti eldisfisks árið 2015 var um 7 milljarðar króna samanborið við 5,5 milljarða króna árið 2014 á föstu verðlagi. Bandaríkin eru sem fyrr stærsti markaðurinn fyrir íslenskar eldisafurðir með um 35% af heildarverðmæti ársins 2015. Bretland kemur þar á eftir með um 9,3% og Þýskaland með um 7,5%.

Útgefin leyfi til framleiðslu fiskeldis eru mest á Vestfjörðum og Vesturlandi en þar eru leyfi fyrir 21.698 tonna ársframleiðslu. Hafa rekstrarleyfi til framleiðslu fiskeldis stækkað um 2.320 tonn frá árinu 2014.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK