19% lækkun milli ára í Kauphöllinni

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni í nóvember námu 40.047 milljónum eða 1.820 milljónum á dag. Það er 32% lækkun frá fyrri mánuði, en í október námu viðskipti með hlutabréf 2.684 milljónum á dag.  Þetta er 19% lækkun á milli ára en viðskipti í nóvember 2015 námu 2.251 milljón á dag.

Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group,  upp á 6.638 milljónir, Marel upp á 4.823 milljónir, Eimskipafélags Íslands upp á 4.437 milljónir, Haga fyrir 3.860 milljónir,  og N1 fyrir 3.241 milljón.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.712 stigum.

Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 23,8%, Íslandsbanki með 19,3% og Landsbankinn með 17,1%.

Í lok nóvember voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 977 milljörðum króna, samanborið við 979 milljarða í október.

Heildarviðskipti með skuldabréf námu 139 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 6,3 milljarða veltu á dag. Þetta er 19% hækkun frá fyrri mánuði en 43% lækkun frá fyrra ári.

Alls námu viðskipti með ríkisbréf 118,1 milljarði, viðskipti með íbúðabréf námu 5,8 milljörðum, og viðskipti með bankabréf námu 12,0 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 22 1026, 22,5 milljarðar, RIKB 31 0124, 20,4 milljarðar, RIKB 25 0612, 17,7 milljarðar, RIKB 20 0205, 15,8 milljarðar og RIKH 18 1009, 10,0 milljarðar.

Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 21,9,  Íslandsbanki með 20,2% og Kvika banki með 16,8%.

Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,5% í nóvember og stendur í 1.236 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,3% og sú verðtryggða hækkaði um 0,5%.                        

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK