Kolbrún til Íslandshótela

Kolbrún hefur verið áberandi í íslensku atvinnulífi og setið meðal …
Kolbrún hefur verið áberandi í íslensku atvinnulífi og setið meðal annars í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins á árunum 2010-2012. Eins var hún formaður endurskoðunarnefndar Sameinaða lífeyrissjóðsins (2011-2014). Aðsend mynd

Kolbrún Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela. Íslandshótel eiga og reka 17 hótel með yfir 1.700 gistirými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu og hefur orðið gríðarlegur vöxtur hjá fyrirtækinu samkvæmt fréttatilkynningu.

Kolbrún er alkunn fyrirtækinu en hún hefur setið í stjórn Íslandshótela frá árinu 2015.

Árið 1987 útskrifaðist Kolbrún sem cand oecon frá Háskóla Íslands og lauk síðar Excecutive Education frá Kenan-Flagler Business School árið 2000. Hún stóðst hæfnismat FME í janúar 2011 og árið 2012 hlaut Kolbrún löggildingu sem verðbréfamiðlari. Kolbrún er einnig menntaður leiðsögumaður frá EHÍ.

Í tilkynningunni segir að Kolbrún hafi starfað í lykilstöðum hjá fremstu fyrirtækjum landsins. Hún starfaði sem fjármálastjóri Húsasmiðjunnar í 7 ár eða frá 1989-1996 og tók þátt í miklum vexti félagsins. Kolbrún starfaði sem  útibússtjóri, forstöðumaður bakvinnslu og verkefnastjóri Íslandsbanka (Glitnis) á árunum 1996-2008 og sat síðar í stjórn bankans. Á árunum 2008-2010 starfaði Kolbrún sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Vátryggingafélags Íslands og því næst var hún framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Kjölfestu  (félag í eigu 14 lífeyrissjóða).

Kolbrún hefur verið áberandi í íslensku atvinnulífi og setið meðal annars í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins á árunum 2010-2012.  Eins var hún formaður endurskoðunarnefndar Sameinaða lífeyrissjóðsins (2011-2014). Kolbrún hefur einnig setið í stjórn Húsasmiðjunnar, Fastus, Senu og nú síðast í stjórn Íslandshótela, eins og áður kom fram. Að auki hefur hún unnið að fjölmörgum verkefnum, félags- og stjórnunarstörfum. Kolbrún er gift Páli Hilmarssyni, framkvæmdastjóra hjá Innnes, og eiga þau tvö börn.

Kolbrún hlakkar til að takast á við ný og spennandi verkefni hjá Íslandshótelum. „Eins og allir þekkja þá er ferðaþjónustan ört vaxandi atvinnugrein og á örskömmum tíma hefur hún orðið meginstoð í íslensku atvinnulífi. Íslandshótel er eitt af stærstu félögum hér á landi og rekur í dag 17 hótel og fasteignir hringinn í kringum landið, það er því ánægjulegt að fá að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu hjá félaginu með því frábæra starfsfólki sem þar starfar,“ er haft eftir Kolbrúnu í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK