Páll verður framkvæmdastjóri Samorku

Páll hefur störf í ársbyrjun 2017.
Páll hefur störf í ársbyrjun 2017.

Páll Erland hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samorku. Hann hefur starfað í orku- og veitufyrirtækjum frá árinu 2001. Páll var meðal annars framkvæmdastjóri veitureksturs Orkuveitu Reykjavíkur í  sjö ár og framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar frá því orkufyrirtækið var stofnað árið 2014.  Þá hefur hann einnig setið í stjórn HS Veitna. 

Páll er með MBA frá Rockford University í Bandaríkjunum og BS í viðskiptafræði frá sama skóla.

Páll hefur störf í ársbyrjun 2017. Hann tekur við starfinu af Gústaf Adolf Skúlasyni sem sagði starfi sínu lausu í október en gegnir því áfram þar til Páll tekur til starfa. Gústaf verður samtökunum jafnframt áfram innan handar fyrst um sinn.

Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Innan samtakanna starfa fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuframleiðendur, raforkusalar og flutnings- og dreifingarfyrirtæki raforku.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK