Ísland orðið 7% dýrara en Noregur

Verðlag á Íslandi hefur hækkað mikið frá árinu 2015 og …
Verðlag á Íslandi hefur hækkað mikið frá árinu 2015 og er 53% hærra en að meðaltali í ESB. „Það vekur þó enn meiri athygli okkar að Ísland er orðið 7% dýrara en Noregur og er einungis 4% frá því að vera dýrara en Sviss,“ segir í punktunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Á suma mælikvarða má segja að Íslendingar séu ein allra ríkasta þjóð í heimi og krónan sé sterkasti gjaldmiðill í heimi. Stóra spurningin er því hvort það sé eitthvað sem getur staðist til lengri tíma,“ segir í markaðspunktum greiningardeildar Arion banka. Þar er bent á að gengi krónunnar hafi styrkst á nánast hverjum einasta degi frá því um mitt sumar og nemur styrkingin nú 17% frá ársbyrjun.

Í punktunum kemur fram að gengi krónunnar endurspegli m.a. framleiðslu í hagkerfinu, væntingar um efnahagsþróun og eftirspurn íslenska hagkerfisins. Bent er á að þessi hraða gengisstyrking hafi veruleg neikvæð áhrif á afkomu útflutningsfyrirtækja og veikir samkeppnisstöðu þeirra. Á sama tíma stuðlar hún að mikilli aukningu innflutnings. Stórbætt skuldastaða þjóðarbúsins við útlönd og önnur hagstæð þróun þýðir að jafnvægisraungengi er líklega talsvert hærra en það var fyrir fáeinum árum.

53% hærra verðlag en í ESB

„En hvar gæti nýtt jafnvægisraungengi legið? Miðað við það jafnvægisraungengi sem við mátum í nýlegri hagspá okkar er raungengi krónunnar í dag um 10-12% hærra en staðist getur til lengdar. Talsverð óvissa er um þetta mat og yfirleitt sveiflast gengi gjaldmiðla í kringum jafnvægi. Því eru frávik frá langtímajafnvægi eðlileg og ásættanleg svo fremi sem þau verði ekki jafnmikil og t.d. á árunum 2004-2008,“ segir í markaðspunktum.

Bent er á að á vefsíðunni Numbeo þar sem hægt er að bera saman verð hinna ýmsu vara og húsnæðisverð milli landa og borga er Reykjavík metin 13. dýrasta borgin af 372 borgum. Það mat miðast við gengi gjaldmiðla um mitt ár 2016, en gengið hefur styrkst um 13% síðan þá svo Reykjavík hefur eflaust færst ofar á listanum.

Þá hefur verðlag á Íslandi hækkað mikið frá árinu 2015 og er 53% hærra en að meðaltali í ESB. „Það vekur þó enn meiri athygli okkar að Ísland er orðið 7% dýrara en Noregur og er einungis 4% frá því að vera dýrara en Sviss,“ segir í punktunum.

Orðið dýrasta land í heimi?

Árið 2015 var Sviss dýrasta land í heimi miðað við mismun á landsframleiðslu í dollurum á nafnvirði og leiðrétt fyrir kaupmáttarjöfnuði (PPP) samkvæmt mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Frá miðju ári 2015 hefur íslenska krónan styrkst um 22% gagnvart svissneskum franka svo ef miðað er við kaupmáttarleiðrétt gengi gjaldmiðla frá 2015 er Ísland nú komið upp fyrir Sviss og að líkindum orðið dýrasta land í heimi á þeim mælikvarða.

Þá þyrfti krónan að veikjast um 27% til þess að verðlag væri sambærilegt við Bandaríkin. Þetta kemur fram í punktunum og er vitnað í mat OECD á yfir- eða undirverðlagningu landa og gjaldmiðla gagnvart Bandaríkjunum miðað við hvert gengi gagnvart Bandaríkjadal hefði þurft að vera árið 2015 svo að kaupmáttarjöfnuður myndi halda.

Aftur á móti þyrfti rússneska rúblan að styrkjast um 65% til að verðlag þar og í Bandaríkjunum væri hið sama.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK