Ásta nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

Ásta Sigríður Fjeldsted.
Ásta Sigríður Fjeldsted.

Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands. Hún tekur við starfinu af Frosta Ólafssyni sem gegnt hefur starfinu síðastliðin fjögur ár, segir í frétt í Morgunblaðinu í dag.

Morgunblaðið greindi frá því á laugardaginn að Frosti mundi taka við starfi forstjóra Orf Líftækni innan tíðar.

Ásta Sigríður hefur frá árinu 2012 starfað hjá ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey & Company, fyrst í Kaupmannahöfn en frá 2014 í Tókýó í Japan. Á árunum 2010 til 2012 starfaði hún hjá IBM í Kaupmannahöfn.

Hún er með mastersgráðu í rekstrarverkfræði frá Tækniháskóla Danmerkur (DTU), sem hún lauk árið 2012. Árið 2007 hafði hún lokið BS-gráðu frá sama skóla í vélaverkfræði. Á árunum 2003 til 2004 lagði hún stund á nám í frönsku og stjórnmálafræði við Aix-Marseille háskólann og á árunum 2002-2003 stundaði hún verkfræðinám við Háskóla Íslands.

Ásta Sigríður er fædd árið 1982. Sambýlismaður hennar er Bolli Skúlason Thoroddsen, sem verið hefur stjórnarformaður Verslunarráðs Íslands í Japan frá árinu 2013.

Þá eru frekari mannabreytingar hjá VÍ framundan því samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur ráðsins, sagt starfi sínu lausu og mun hann láta af því á næstunni. Hann hefur gegnt því starfi frá því í febrúar 2014. Hann starfaði áður á skrifstofu McKinsey & Company í Kaupmannahöfn og í greiningardeild fjárfestingarbankans Credit Suisse í London.

Ásta mun taka formlega til starfa 1. júní næstkomandi, segir í tilkynningu frá Viðskiptaráði.

Ásta segir verkefnið leggjast vel í sig. „Þrátt fyrir langa dvöl erlendis eru málefni Íslands mér alls ekki ókunnug. Ég kom að Samráðsvettvangi um aukna hagsæld árið 2013 í tengslum við störf mín hjá McKinsey og fór í þeirri vinnu ofan í kjölinn á ýmsum helstu áskorunum Íslands, í samstarfi við einvala lið fólks. Það er mér ánægjuefni að mörg atriði hafa komist áfram, þó enn séu málaflokkar sem minna hafa hreyfst.

Ég hef mikla trú á dugnaði og frumkvæði Íslendinga og viðskiptalífinu almennt. Innan raða Viðskiptaráðs er breiður hópur fyrirtækja sem stendur frammi fyrir ólíkum tækifærum og áskorunum. Ég hlakka til að vinna með þeim að bættum lífskjörum og hag landsmanna almennt í samstarfi við nýja ríkisstjórn, stjórnsýsluna og aðra hagsmunaaðila. Við þurfum að styrkja innviði samfélagsins enn frekar og efla forsendur öflugs atvinnulífs og frjálsra viðskipta. Þannig verður Ísland framtíðarinnar eftirsóknarvert fyrir komandi kynslóðir,“ er haft eftir henni í fréttatilkynningu.

Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs, segist í sömu fréttatilkynningu hlakka til samstarfsins með Ástu: „Við hjá Viðskiptaráði erum stolt af því að ná að draga jafn hæfileikaríka manneskju aftur heim til Íslands. Ásta kemur til starfa á áhugaverðum tímamótun en í haust verða 100 ár liðin frá stofnun Viðskiptaráðs. Alþjóðleg reynsla, greiningarhæfni og stjórnunarhæfileikar eru allt eiginleikar sem munu gagnast Ástu vel í verkefnunum framundan. Viðskiptaráð hefur unnið á grunni McKinsey-skýrslunnar undanfarin fjögur ár og því mjög við hæfi að leita í raðir fyrirtækisins eftir nýjum framkvæmdastjóra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK