Icelandair kaupir nýjan flughermi

Mynd frá því þegar Boeing 757 flughermirinn í Hafnarfirði var …
Mynd frá því þegar Boeing 757 flughermirinn í Hafnarfirði var formlega tekin í notkun. Mynd Icelandair/Siggi Anton

Dótturfélag Icelandair sem sér um þjálfunarsetur félagsins í Hafnarfirði hefur skrifað undir kaupsamning á nýjum Boeing 737MAX flughermi. Icelandair er fyrsta flugfélagið sem festir kaup á slíkum hermi, en Boeing flugvélaframleiðandinn er um þessar mundir sjálfur að gangsetja fyrstu fjóra flughermana í heiminum fyrir Boeing 737MAX.

Stefnt er að því að hermirinn verði tekinn í notkun sumarið 2018, á svipuðum tíma og nýjar vélar Icelandair af þessari sömu gerð verða teknar í notkun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair, en það er dótturfélagið TRU Flight Training Iceland sem rekur hermana.

Ný bygging, áföst þjálfunarsetri félagsins í Hafnarfirði, verður reist yfir herminn. Flughermar eru notaðir við nýþjálfun og reglubundna þjálfun flugmanna.

Fyrir tveimur árum tók félagið í notkun Boeing 757-200 flughermi og fluttist þá stærstur hluti þjálfunar flugmanna Icelandair inn í landið. Rekstur hermisins hefur reynst mjög vel og á síðasta ári var nýting hans 18 klukkustundir að meðaltali á sólarhring. Icelandair er stærsti notandinn, en erlend flugfélög svo sem FedEx, kaupa einnig þjálfun fyrir sína flugmenn í herminum.

„Ákvörðunin um kaupin á 737MAX flughermi byggir einkum á hinum miklu vinsældum þessarar nýju flugvélagerðar en hún hefur selst hraðar en nokkur önnur vél í sögu Boeing. Um 3600 Boeing 737MAX hafa þegar verið seldar, til viðbótar við þær níu þúsund 737 vélar sem fyrir eru í heiminum, og ljóst að mikil spurn verður eftir flughermiþjálfun flugmanna þegar vélarnar koma á markað,“ er haft eftir Guðmundi Erni Gunnarssyni, framkvæmdastjóri TRU Flight Training Iceland.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK