Sjóvá greiðir 2,6 milljarða í arð

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Hagnaður Sjóvár á síðasta ári nam 2.690 milljónum króna en stjórn félagsins leggur til að um 2.600 milljónir króna verði greiddar í arð. Hagnaður félagsins af vátryggingastarfsemi fyrir skatta nam 646 milljónum króna og hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 2.459 milljónum króna.

Afkoma fyrir skatta og afskrift óefnislegra eigna lækkar úr 3.935 milljónum króna árið 2015 í 3.105 milljónir króna árið 2016. Arðsemi eigin fjár nam 15,9%.

Í tilkynningu kemur fram að horfur fyrir árið 2017 geri ráð fyrir að samsett hlutfall verði á bilinu 97-99% og að hagnaður fyrir skatta verði meiri en 2.500 milljónir króna. 

Óvenju góð afkoma

„Afkoma Sjóvár fyrir árið 2016 var óvenju góð sem helgast fyrst og fremst af ávöxtun fjárfestingareigna sem var umfram væntingar. Afkoman af vátryggingastarfsemi fyrir árið var ekki langt frá birtum horfum í upphafi síðasta árs. Aðgerðir á liðnu ári til lækkunar á samsettu hlutfalli báru árangur og við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram á þessu ári. Tjónshlutfallið er hærra en við teljum ásættanlegt en þar hafa aukin umsvif í þjóðfélaginu áhrif. Fjölgun erlendra ferðamanna hefur þar líka sitt að segja. Aukningin á milli ára í umferð um hringveginn í fyrra var sú mesta frá upphafi mælinga og vísbendingar eru um að sú þróun muni halda áfram,“ er haft eftir Hermanni Björnssyni, forstjóra Sjóvár.

„Innviðirnir verða að fylgja þessari stórauknu umferð því með henni aukast líkur á alvarlegu slysi en slys á erlendum ferðamönnum eiga sér flest stað í dreifbýli. Alvarlegum umferðarslysum sem ferðamenn lenda í hefur fjölgað meira en sem nemur fjölgun ferðamanna undanfarin tvö ár og það er þróun sem við eigum ekki að sætta okkur við. Það er forgangsmál að tryggja öryggi allra sem ferðast um landið með forvörnum og frekari fjárfestingum í vegakerfinu og öðrum innviðum,“ segir Hermann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK