Milljarðahagnaður í laxeldi

Arnarlax flytur út 100.000 laxamáltíðir á dag og 70% fara …
Arnarlax flytur út 100.000 laxamáltíðir á dag og 70% fara til Bandaríkjanna. mbl.is/Helgi Bjarnason

Laxaslátrun hófst fyrst hjá Arnarlaxi í fyrra, en þrátt fyrir það er hagnaður félagsins fyrir skatta nálægt þremur milljörðum króna. Heildarvirði fyrirtækisins er metið nærri 20 milljörðum.

Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax hagnaðist á síðasta ári um 2,7 milljarða íslenskra króna fyrir skatta, þó svo að laxaslátrun hafi einungis hafist hjá fyrirtækinu á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Hagnaðartalan er fengin með svokallaðri „Fair Value“-útreikniaðferð, en þar er lífmassinn í kvíum fyrirtækisins metinn á markaðsvirði. Þetta er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS, og kemur fram í uppgjöri norska eldisfyrirtækisins Salmar AS, sem er hluthafi í Arnarlaxi og skráð í kauphöllinni í Ósló.

Arnarlax slátraði 6.000 tonnum af laxi á síðasta ári, en á þessu ári er stefnt að 10.000 tonna framleiðslu. Á næstu þremur til fimm árum er stefnt að því að tvöfalda þá tölu og framleiða nálægt 20.000 tonnum.

Uppbygging Arnarlax hefur staðið síðan árið 2009, en eftir sölu Tryggingamiðstöðvarinnar fyrr í vikunni á 3% hlut í Kvitholmen, eiganda Arnarlax, fyrir jafnvirði 473 milljóna króna, liggur fyrir að félagið er verðmetið á um 16 milljarða íslenskra króna. Að viðbættum skuldum myndi heildarvirði þess liggja nærri 20 milljörðum króna.

Kjartan Ólafsson stjórnarformaður félagsins segir að markaðsvirði félagsins komi mörgum á óvart, enda séu menn skyndilega að átta sig á umfangi laxeldisins hér á landi.

„Nú í ár slátrum við 10.000 fiskum á dag og flytjum út 5-6 daga vikunnar um 100 þúsund hágæða máltíðir að vestan á dag, eða á bilinu 40-50 tonn af slægðum laxi,“ segir Kjartan í samtali við ViðskiptaMoggann.

Spurður að því hvort greinin sé komin á beinu brautina, eins og í Færeyjum og Noregi til dæmis, segist Kjartan vilja fara varlega í slíkar fullyrðingar. „Greinin hefur átt erfitt uppdráttar. Í Færeyjum tóku menn tvær kollsteypur áður en þeir komust á beinu brautina. Það eina sem ég get sagt er að síðasta ár var mjög hagfellt hjá okkur, aðstæður á mörkuðum voru góðar, verð á laxi er hátt, og það er fátt sem bendir til annars en að það muni haldast þannig.“

Kjartan segir að Íslendingar búi að traustri grunngerð í fiskinum, söluferlar, dreifileiðir, starfsfólk og annað sé til staðar. „Það er þó margt óunnið í uppbyggingu greinarinnar og í þessu samtali við sveitarfélög og samfélagið. Það eru áskoranir eins og laxalúsin og genablöndun ef fiskar sleppa úr kvíum. Núna fyrst eru að verða til tekjur til skiptanna úr rekstrinum til að nota til að byggja upp ytra umhverfið, eins og gott eftirlit og aðhald, og ná sátt um greinina.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK