Farþegum WOW fjölgaði um 170%

Skúli Mogensen, forstjóri WOW.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW. mbl.is/Rax

WOW air flutti 166.647 farþega til og frá landinu í febrúar eða um 170% fleiri en í febrúar í fyrra. Þá var sætanýting WOW air 87% en það er sama sætanýting og í febrúar á síðasta ári. Sætanýtingin er sú sama þrátt fyrir 171% aukningu á sætaframboði í febrúar.

Framboðnum sætiskílómetrum fjölgaði um 239% í febrúar frá því á sama tíma í fyrra.

Það sem af er árinu hefur WOW air flutt um 337 þúsund farþega en það er 198% aukning farþega á sama tímabili frá árinu áður.

WOW air mun frá lok mars fljúga tvisvar á dag til London, Parísar og Amsterdam. Félagið hóf áætlunarflug til New York í lok nóvember á síðasta ári og munu svo bætast við leiðarkerfið Miami í apríl og Pittsburgh í júní. WOW air mun einnig fljúga daglega til Los Angeles og San Francisco. Í ár mun félagið fljúga til níu áfangastaða í Norður-Ameríku og er flogið allan ársins hring.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK