Tilnefningar til FÍT-verðlaunanna

82 verk voru tilnefnd til FÍT-verðlaunanna, en þau verða afhend …
82 verk voru tilnefnd til FÍT-verðlaunanna, en þau verða afhend eftir viku.

Hin ár­legu FÍT-verðlaun, sem veitt eru af Fé­lagi ís­lenskra teikn­ara, verða af­hent næst­kom­andi miðviku­dag. Verðlaun­in eru veitt fyr­ir þau verk sem sköruðu fram úr á sviði graf­ískr­ar hönn­un­ar og myndskreyt­ing­ar á liðnu ári. Í keppn­ina senda verk bæði aug­lýs­inga­stof­ur og ein­yrkj­ar auk þess sem nem­end­ur í graf­ískri hönn­un senda verk í sér­stak­an nem­enda­flokk.

Alls er um að ræða 82 tilnefningar, en annað árið í röð var um að ræða met­fjölda inn­send­inga og fjölgaði þeim um rúmlega 10% milli ára og voru 300 talsins. 

Til­nefnt er í 19 flokk­um og ná þeir yfir helstu und­ir­flokka graf­ískr­ar hönn­un­ar, svo sem skjágrafík, vef­hönn­un, prent­verk, aug­lýs­inga­hönn­un og myndskreyt­ing­ar. Að auki verða veitt aðalverðlaun á ný sem verðlauna það verk sem þótti skara fram úr á meðal verðlaunaðra verka.

Til­kynnt verður um verðlauna­hafa og viður­kenn­ing­ar með viðhöfn í Tjarn­ar­bíói þann 22. mars kl. 18.30. Viðburður­inn mark­ar upp­haf hönn­un­ar­hátíðar­inn­ar Hönn­un­ar­Mars sem mun setja svip sinn á borg­ar­lífið í Reykja­vík dag­ana 23.–26. mars. Sýning á þeim verkum sem hljóta verðlaun og viðurkenningu verður svo í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi á meðan á HönnunarMars stendur­.

Þeir flokkar sem tilnefnt er í eru: Almennar myndskreytingar, auglýsingaherferðir, bókahönnun, bókakápur, firmamerki, mörkun fyrirtækja, gagnvirk miðlun og upplýsingahönnun, geisladiskar og plötur, hreyfigrafík, opinn flokkur, menningar- og viðburðamörkun, myndskreytingar fyrir auglýsingar og herferðir, stafrænar herferðir, stakar auglýsingar fyrir prentmiðla, umbúðir og pakkningar, umhverfisgrafík, vefsíður, veggspjöld og nemendaflokkur. 

Almennar myndskreytingar og útgáfur

Íslandsbók barnanna
Myndskreytir: Linda Ólafsdóttir
Unnið fyrir: Forlagið

Júragarðurinn
Myndskreytir: Eysteinn Þórðarson
Stofa: Jónsson & Le’macks
Unnið fyrir: Frosty X Peter Overdrive

Jólaveggur á Brandenburg
Myndskreytir: Unnie Arendrup
Stofa: Brandenburg

shitegillhelgasonsays
Myndskreytir: Gunnar Þorvaldsson
Stofa: Jónsson & Le’macks

Þættir af séra Þórarinum og fleirum
Myndskreytir: Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le’macks
Unnið fyrir: Þórarin Eldjárn / Forlagið

Auglýsingaherferðir

Botnaðu það með Burger
Hönnuðir: Guðmundur David Terrazas og Gunnar Þór ArnarsonStofa: Hvíta Húsið
Unnið fyrir: Ásbjörn Ólafsson

HönnunarMars 2017
Hönnuðir: Guðbjörg Tómasdóttir og Rán Flygenring
Unnið fyrir: Hönnunarmiðstöð Íslands

Íslenska lambið
Hönnuðir: Albert Muñoz, Eysteinn Þórðarson og Gunnar Þorvaldsson
Stofa: Jónsson & Le’macks
Unnið fyrir: Markaðsráð kindakjöts

Reykjavíkurnætur
Hönnuður: Einar Geir Ingvarsson
Stofa: E&Co.
Unnið fyrir: Geysir

Styttum svartnættið
Hönnuður: Selma Rut Þorsteinsdóttir
Stofa: Pipar\TBWA
Unnið fyrir: Stígamót

Bókahönnun

Cycle bæklingur
Hönnuður: Hörður Kristbjörnsson, Guðmundur Pétursson og Valur Þorsteinsson
Stofa: Döðlur
Unnið fyrir: Cycle Listahátíð

Gengið í björg
Hönnuðir: Guðmundur Ingi Úlfarsson og Mads Freund Brunse
Stofa: GUNMAD
Unnið fyrir: Crymogea

HA — Tímarit um íslenska hönnu & arkitektúr
Hönnuðir: Arnar Ingi Viðarsson og Hrefna Sigurðardóttir
Unnið fyrir: Hönnunarmiðstöð Íslands

Jón lærði og náttúrur náttúrunnar
Hönnuður: Ragnar Helgi Ólafsson
Unnið fyrir: Lesstofan

Silk - leturbók
Hönnuður: Rakel Tómasdóttir
Útskriftarverkefni úr Listaháskóla Íslands

Bókakápur

Kransæðabókin
Hönnuður: Emil Hannes Valgeirsson
Unnið fyrir: Guðmund Þorgeirsson og Tómas Guðbjartsson

Jón lærði og náttúrur náttúrunnar
Hönnuður: Ragnar Helgi Ólafsson
Unnið fyrir: Lesstofan

Svartigaldur
Hönnuður: Sigrún Gylfadóttir
Stofa: Kontor Reykjavík
Unnið fyrir: Sögur útgáfa

Þættir af séra Þórarinum og fleirum
Hönnuður: Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le’macks
Unnið fyrir: Þórarin Eldjárn / Forlagið

Firmamerki

Burro
Hönnuður: Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Burro/Pablo

Cycle
Hönnuður: Hörður Kristbjörnsson
Stofa: Döðlur
Unnið fyrir: Listahátíðin Cycle

Kass
Hönnuður: Hjörvar Harðarson
Stofa: ENNEMM
Unnið fyrir: Íslandsbanka

Rok
Hönnuður: Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Rok

Strikamerki
Hönnuður: Örn Smári Gíslason
Stofa: Örn Smári hönnun
Unnið fyrir: Strikamerki hf.

When in Iceland
Hönnuður: Björgvin Pétur Sigurjónsson
Stofa: Jökulá
Unnið fyrir: When in Iceland

Geisladiskar og plötur

Boogie Trouble
Hönnuður: Sveinbjörn Pálsson
Unnið fyrir: Boogie Trouble

East Of My Youth
Hönnuðir: Hrefna Sigurðardóttir og Davíð Arnar Baldursson
Unnið fyrir: East Of My Youth

Júragarðurinn
Hönnuður: Eysteinn Þórðarson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Frosty X Peter Overdrive

Long Night
Hönnuður: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: russian.girls

The Truth the Love the Life
Hönnuður: Þorleifur Kamban
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Markús and the Diversions Sessions

Hreyfigrafík

Fjögur atriði til að bæta netið
Hönnuðir: Sigrún Hreins og Gunnar Þór Arnarson
Stofa: Hvíta Húsið
Unnið fyrir: Ljósleiðarinn

Tilkynninga video #1
Hönnuðir: Hólmsteinn Össur Kristjánsson og Arnar Geir Ólafsson
Stofa: Playmo
Unnið fyrir: Icelandic Airwaves

Tilkynninga video #2
Hönnuðir: Hólmsteinn Össur Kristjánsson og Arnar Geir Ólafsson
Stofa: Playmo
Unnið fyrir: Icelandic Airwaves

Menningar- og viðburðamörkun

HönnunarMars 2017
Hönnuðir: Guðbjörg Tómasdóttir og Rán Flygenring
Unnið fyrir: Hönnunarmiðstöð Íslands

Listahátíðin Cycle
Hönnuðir: Hörður Kristbjörnsson, Guðmundur Pétursson og Valur Þorsteinsson
Stofa: Döðlur
Unnið fyrir: Listahátíðina Cycle

Listasafn Reykjavíkur
Hönnuðir: Hjalti Karlsson, Jan Wilker, Sandra Shizuka, Ármann Agnarsson
Stofa: KarlssonWilker
Unnið fyrir: Listasafn Reykjavíkur

Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hönnuðir: Hörður Kristbjörnsson, Guðmundur Pétursson og Valur Þorsteinsson
Stofa: Döðlur
Unnið fyrir: Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sturla Atlas
Hönnuðir: Sigurður Oddsson og Kjartan Hreinsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Sturla Atlas

Mörkun fyrirtækja

Aktu taktu
Hönnuðir: Hrafn Gunnarsson og Jón Ingi Einarsson
Stofa: Brandenburg
Unnið fyrir: FoodCo

Burro/Pablo
Hönnuður: Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Burro/Pablo

Nox Medical
Hönnuðir: Högni Valur Högnason, Eðvarð Atli Birgisson, Salbjörg Rita Jónsdóttir, Arnar Geir Ómarsson og Ragnheiður K. Sigurðardóttir
Stofa: H:N Markaðssamskipti
Unnið fyrir: Nox Medical

Viking
Hönnuður: Al­bert Muñoz og Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le’macks
Unnið fyrir: Víking brugghús

Myndskreytingar fyrir auglýsingar og herferðir

Fungyn - við sveppasýkingu í leggöngum
Hönnuðir: Sigrún Gylfadóttir og Alex Jónsson
Stofa: Kontor Reykjavík
Unnið fyrir: Alvogen

Hátíðardagar

Hönnuðir: Magnús Arason og Sigurður Eggertsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Landsbankinn

Hollráð Námunnar
Hönnuður: Linda Ólafsdóttir
Unnið fyrir: Landsbankinn

Lestrarátak Ævars Vísindamanns
Hönnuðir: Þorvaldur Sævar Gunnarsson og Hrafn Gunnarsson
Stofa: Brandenburg
Unnið fyrir: Ævar Vísindamann

Nemendaflokkur

Fjallafaðmur
Hönnuður: Guðjóna Björk Þorbjarnardóttir

Gombri
Hönnuður: Elín Edda Þorsteinsdóttir

Silk leturfjölskylda
Hönnuður: Rakel Tómasdóttir
Útskriftarverkefni úr Listaháskóla Íslands

Svefnmynstur
Hönnuður: Iona Sjöfn Huntingdon-Williams
Stofa: Jónsson & Le'macks
Útskriftarverkefni úr Listaháskóla Íslands

The Oracle's Query
Hönnuður: Magnús Ingvar Ágústsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Útskriftarverkefni

Vessel
Hönnuður: Magnús Ingvar Ágústsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Útskriftarverkefni

Opinn flokkur

Matur og drykkur kokteilseðill
Hönnuður: Albert Muñoz
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Matur og drykkur

T-shirts for Fufanu
Hönnuðir: Viktor Weisshappel Vilhjálmsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Fufanu

Ultramarine – Sérsniðið letur fyrir 66°Norður
Hönnuður: Guðmundur Ingi Úlfarsson
Stofa: Or Type
Unnið fyrir: 66°Norður

Víking bæklingur
Hönnuður: Albert Muñoz
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Víking brugghús

Stakar auglýsingar fyrir prentmiðla

Göngugrind
Hönnuður: Bobby Breiðholt
Stofa: ENNEMM
Unnið fyrir: MS

Reebok Fitness – Losaðu þig við jólalögin
Hönnuðir: Davíð Arnar Baldursson, Jón Páll Halldórsson, Þorvaldur Gunnarsson og Hrafn Gunnarsson
Stofa: Brandenburg s
Unnið fyrir: Reebok Fitnes

Reykjavíkurnætur
Hönnuður: Einar Geir Ingvarsson
Stofa: E&Co.
Unnið fyrir: Geysir

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsing
Hönnuðir: Hörður Kristbjörnsson, Guðmundur Pétursson og Valur Þorsteinsson
Stofa: Döðlur
Unnið fyrir: Sinfónuhljómsveit Íslands

Styttum svartnættið
Hönnuður: Selma Rut Þorsteinsdóttir
Stofa: Pipar\TBWA
Unnið fyrir: Stígamót

Stafrænar herferðir

Fylgið mér
Hönnuðir: Jón Ari Helgason, Árni Þór Árnason og Dóra Haraldsdóttir
Stofa: Brandenburg
Unnið fyrir: Nova

Iceland Airwaves
Hönnuður: Gunnar Þorvaldsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Landsbankinn

Íslenska lambið
Hönnuðir: Albert Muñoz, Eysteinn Þórðarson og Gunnar Þorvaldsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Markaðsráð kindakjöts

Kass
Hönnuðir: Hjörvar Harðarson og Friðlaugur Jónsson
Stofa: ENNEMM
Unnið fyrir: Íslandsbanka

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Hönnuðir: Hjörvar Harðarson og Dóróthea Svavarsdóttir
Stofa: ENNEMM
Unnið fyrir: Íslandsbanki

Umbúðir

Fisherman umbúðalína
Hönnuður: Jóhanna Svala Rafnsdóttir
Stofa: Kapall
Unnið fyrir: Fisherman

Ullarbox
Hönnuðir: Albert Muñoz og Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Markaðsráð kindakjöts

Víking Craft Beer Selection
Hönnuðir: Albert Muñoz, Sigurður Oddsson og Svala Hjörleifsdóttir
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Víking brugghús

Umhverfisgrafík

Rafbraut um Ísland í Kringlunni
Hönnuðir: Jón Ari Helgason, Jón Ingi Einarsson og Árni Þór Árnason
Stofa: Brandenburg
Unnið fyrir: Orkusalan

Sjógalli á gangstétt
Hönnuður: Sigurður Oddsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: 66°Norður

Sushi bakki
Hönnuðir: Sigrún Gylfadóttir og Alex Jónsson
Stofa: Kontor Reykjavík
Unnið fyrir: Tokyo Sushi

Svartigaldur - stærsta bókin í ár
Hönnuðir: Sigrún Gylfadóttir og Alex Jónsson
Stofa: Kontor Reykjavík
Unnið fyrir: Sögur útgáfa

Upplýsingahönnun & Gagnvirk miðlun

Flugupplýsingar Isavia
Hönnuður: Haukur Pálsson
Stofa: Hvíta húsið
Unnið fyrir: Isavia

Rútustaurar
Hönnuðir: Hörður Lárusson og Atli Þór Árnason
Stofa: Brandenburg
Unnið fyrir: Reykjavíkurborg

Sprotarnir
Hönnuður: Kári Gunnarsson
Unnið fyrir: Landsbankinn

Stangveiðifélagið
Hönnuður: Tryggvi Þór Hilmarsson
Stofa: Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: SVFR - Stangveiðifélag Reykjavíkur

Vefsíður

2016.godigital.is
Hönnuðir: Michael Bing, Rachel Salmon, Steinar Ingi Farestveit
Stofa: Kolibri
Unnið fyrir: Go Digital

kosmosogkaos.is
Hönnuður: Guðmundur Bjarni Sigurðsson
Stofa: Kosmos & Kaos
Unnið fyrir: Kosmos & Kaos

oddsson.is
Hönnuðir: Hörður Kristbjörnsson, Viktor Weisshappel og Valur Þorsteinsson
Stofa: Döðlur
Unnið fyrir: ODDSSON

sjova.is
Hönnuðir: Guðmundur Bjarni Sigurðsson / Geir Ólafsson
Stofa: Kosmos & Kaos / Jónsson & Le'macks
Unnið fyrir: Sjóvá

Strætó.is
Hönnuðir: Alex Jónsson og Sigrún Gylfadóttir
Stofa: Kontor Reykjavík
Unnið fyrir: Strætó

Veggspjöld

Alvogen
Hönnuðir: Alex Jónsson og Sigrún Gylfadóttir
Stofa: Kontor Reykjavík
Unnið fyrir: Alvogen

Blái hnötturinn
Hönnuðir: Einar Ingi Sigmundsson
Stofa: ENNEMM
Unnið fyrir: Borgarleikhúsið

HönnunarMars 2017
Hönnuðir: Guðbjörg Tómasdóttir og Rán Flygenring
Unnið fyrir: Hönnunarmiðstöð Íslands

Lestrarátak Ævars Vísindamanns
Hönnuðir: Hrafn Gunnarsson og Þorvaldur Sævar Gunnarsson
Stofa: Brandenburg
Unnið fyrir: Ævar Vísindamann

Veggspjöld fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hönnuðir: Hörður Kristbjörnsson, Guðmundur Pétursson og Valur Þorsteinsson
Stofa: Döðlur
Unnið fyrir: Sinfónuhljómsveit Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK