Samskip hafa um langt skeið stutt við bakið á tónlistarhátíðinni „Aldrei fór ég suður“. Ekki verður brugðið út af vananum í þetta sinn og verða Samskip einn af aðalstyrktaraðilum hátíðarinnar. Samskip sjá um flutninga á tækjum og tólum fyrir hátíðina og veita henni jafnframt styrk í formi peningaframlags.
Einar Pétursson, rekstrarstjóri Samskipa á Ísafirði, ber hitann og þungann af samstarfinu og skipulagningu flutninganna en hann segir að gaman sé að snúast í kringum þetta verkefni sem setji svo mikinn svip á bæinn og sé kærkomin upplyfting í byrjun vors.
Hátíðin er um páskana, 13. til 16. apríl næstkomandi, og fer fram á hafnarsvæðinu á Ísafirði í nýbyggðri skemmu sem Rækjuverksmiðjan Kampi leggur til á gatnamótum Ásgeirsgötu og Suðurgötu. Sem fyrr kostar ekkert inn á hátíðina, sem nýtur stuðnings bæjarfélagsins og fjölda fyrirtækja.
Fram kemur á heimasíðu hátíðarinnar að viðhaldið sé þeirri stefnu að blanda saman straumum og stefnum í tónlist, konum og köllum, gömlum sem ungum, frægum og efnilegum og öllu þar á milli. Boðið verði upp á indípopp, blús, pönk, lúðrastuð, þungarokk, gleðipopp, rapp, köntrí, dramatík og dans. „Allir fá eitthvað, enginn fær ekkert, einn fær ekki allt,“ segir þar.
Eins kemur fram að á meðal flytjenda séu: Emmsjé Gauti, Hildur, Kött Grá Pje, Ham, Soffía Björg, KK Band, sigurvegarar Músiktilrauna, Karó, Mugison, Börn, Valdimar, Vök, Rythmatik og Lúðrasveit Tónlistarskólans á Ísafirði. Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna á www.aldrei.is.