Sterkari króna til lengri tíma

AFP

Afnám gjaldeyrishafta var löngu tímabær aðgerð að sögn Capacent sem telur að aðgerðin muni styrkja gengi krónunnar til lengri tíma. Góð skuldastaða ríkisins, mikill viðskiptaafgangur og kröftugur hagvöxtur ýti allt undir frekari styrkingu krónu og hækkun lánshæfismats.

„Reykur fyllir loftið, glimmer sest á svitaperlað ennið, ljósavélin, eftirvæntingin og taugveiklun fyllir salinn. Skrækir frá miðaldra hagfræðingum og fjölmiðlamönnum magna upp stemmninguna. Allir bíða í ofvæni. Að endingu gerðist voðalega fátt. Afnám gjaldeyrishafta var í raun löngu tímabær aðgerð,“ segir í nýjasta skuldabréfayfirliti Capacent.

Þá segir að allar aðgerðir til styrkingar krónunnar þurfi að vera vel ígrundaðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK