Kunnugleg skilaboð mæta þeim sem ætla inn á vefverslun Apple í dag. Segist fyrirtækið vera með nokkuð sérstakt í boði. Eitthvað sem það getur ekki beðið eftir að sýna viðskiptavinum. Stóru tíðandanna er að vænta klukkan 08:01 að staðartíma eða klukkan 15:01 á Íslandi.
Er þetta jafnan gert þegar nýjar vörur eru kynntar. Búðinni er þá lokað áður en opnað er fyrir pantanir á nýrri vöru. Í þetta skipti er það svokallaður PRODUCT(RED) iPhone 7 og ný iPad spjaldtölva sem verður með 9,7 tommu skjá.
Nýi iPhone síminn er rauður að lit með hvítu Apple merki og á sambærilegu verði og iPhone 7.