Þýskir fjölmiðlar fjalla um sölu bankans

Martin Zeil.
Martin Zeil. Ljósmynd/www.martin-zeil.de

Martin Zeil, fyrrverandi þingmaður þýska þingsins og efnahagsráðherra Bæjaralands, er sagður flæktur í alþjóðlegt bankahneyksli í umfjöllun bæverska ríkissjónvarpsins, BR, í dag.

Vefur Ríkisútvarpsins greinir frá þessu.

Segir þar að Zeil hafi verið yfirmaður lögfræðideildar þýska bankans Hauck & Aufhäuser árið 2003, þegar tæpur helmingshlutur íslenska ríkisins í Búnaðarbankanum var seldur. Fjallað sé þá ítarlega um málið í kvöld í vikulegum fréttaskýringaþætti bæverska ríkissjónvarpsins, Kontrovers.

Fram kemur að bankinn hafi ekki viljað svara spurningum fréttastofu RÚV og óskum um viðtal vegna skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, sem kom út í síðustu viku.

Bankinn hefur þó pantað þýðingu á skýrslunni, að því er fram kemur í yfirlýsingu Hauck & Aufhäuser vegna fyrirspurna BR.

Umfjöllun Süddeutsche Zeitung

Umfjöllun BR

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK