Söfnuðu 1,5 milljón fyrir Mottumars

Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís afhenti, Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, …
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís afhenti, Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, og Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir, kynningar- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, þegar ávisunin var afhent í höfuðstöðvum Olís í dag. Aðsend mynd

Olíuverzlun Íslands afhenti í dag Krabbameinsfélagi Íslands ávísun að andvirði 1.550.000 króna sem var afrakstur söfnunarátaks á vegum Olís og ÓB í þágu Mottumars.

„Við buðum öllum okkar viðskiptavinum að skrá sig í svonefnda Lykilviku í mars og fengu þeir þá 13 krónu afslátt af eldsneytislítranum hjá Olís og ÓB í heila viku. Um leið studdu þeir Mottumars með 5 krónum af hverjum seldum eldsneytislítra. Við hjá Olís teljum það samfélagslega skyldu okkar að styðja við góð málefni og við erum að sjálfsögðu himinlifandi að ná að safna þessari upphæð með stuðningi viðskiptavina okkar sem lögðu sannarlega sitt af mörkum í þessu söfnunarátaki fyrir Mottumars,“ er haft eftir Jóni Ólafi Halldórssyni, forstjóra Olís í fréttatilkynningu.

„Gjöf Olís og viðskiptavina þeirra er okkur dýrmæt því allt starf félagsins byggir á stuðningi almennings og fyrirtækja. Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum og var markmið átaksins í ár að auka þekkingu á skaðsemi tóbaksnotkunar. Stuðningur Olís og viðskiptavina þeirra gerir okkur kleift að sinna mikilvægum verkefnum í þeim tilgangi að fækka þeim sem greinast með krabbamein, fjölga þeim sem lifa og bæta lífsgæði þeirra,“ er haft eftir Kristjáni Sturlusyni, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélags Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK