Íslensk verðbréf greiða 70 milljóna arð

Sigþór Jónsson framkvæmdastjóri ásamt stjórn ÍV: Anna Guðmundsdóttir, Chris Van …
Sigþór Jónsson framkvæmdastjóri ásamt stjórn ÍV: Anna Guðmundsdóttir, Chris Van Aeken, Eiríkur S. Jóhannsson og Harpa Samúelsdóttir. Á myndina vantar Steingrím Pétursson.

Anna Guðmundsdóttir, Chris Van Aeken, Eiríkur S. Jóhannsson og Harpa Samúelsdóttir voru endurkjörin í stjórn Íslenskra verðbréfa á aðalfundi félagsins í gær. Nýr í stjórn er Steingrímur Pétursson.

Varamenn í stjórn félagsins eru þeir Árni Magnússon og Þorsteinn Hlynur Jónsson sem voru endurkjörnir.

Á fundinum var ársreikningur félagsins vegna ársins 2016 staðfestur. Þá var tillaga stjórnar um að greiða 70 milljóna króna arð til hluthafa samþykkt samhljóða.

Hagnaður Íslenskra verðbréfa árið 2016 var um 116 milljónir króna eða sem nemur rúmlega 20% arðsemi eigin fjár, samanborið við 47 milljóna króna hagnað árið 2015. Hreinar rekstrartekjur jukust um 33% á milli ára og námu 712 milljónum króna samanborið við 535 milljónir árið 2015.

Eigið fé í árslok 2016 var 590 milljónir samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall samstæðunnar sem reiknað er samkvæmt 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki var í árslok 29%.

Eignir í stýringu hjá Íslenskum verðbréfum jukust um 10% og voru 129 milljarðar í árslok 2016 en þær námu 117 milljörðum í árslok 2015. Alls voru rúmlega tvö þúsund einstaklingar og lögaðilar með fjármuni í eignastýringu og vörslu hjá félaginu.

Þrjátíu ára afmæli

Eiríkur S. Jóhannsson formaður stjórnar segir að árið 2016 hafi verið ár breytinga hjá félaginu í kjölfar þess að nýir eigendur komu að félaginu í lok árs 2015.

„Stefna nýrra eigenda er að styðja félagið til áframhaldandi vaxtar og hafa verkefni félagsins á árinu 2016 tekið mið af því. Sú grunnvinna sem hefur átt sér stað frá því að nýir eigendur komu að félaginu er farin að skila sér í fjölgun verkefna og viðskiptavina og á eftir að skila enn sýnilegri árangri á næstu mánuðum. Sú staðreynd að félagið fagnar 30 ára afmæli sínu á árinu gefur félaginu sérstöðu á íslenska markaðnum og sterk staða þess gefur félaginu mikil tækifæri til áframhaldandi vaxtar á næstu misserum,“ er haft eftir Eiríki í tilkynningu.

„Rekstur Íslenskra verðbréfa gekk vel á árinu 2016. Við sáum árangur breytinga og vöruþróunar byrja að skila sér þar sem tekjur jukust um 33% og hagnaðar meira en tvöfaldaðist. Umsvif félagsins jukust töluvert á flestum sviðum, starfsmönnum fjölgaði og nýjar vörur og þjónusta voru þróuð sem munu koma til með að mynda breiðari og sterkari grunn fyrir rekstur félagsins í framtíðinni,“ er þá haft eftir Sigþóri Jónssyni, framkvæmdastjóra Íslenskra verðbréfa.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK