Eimskip fjármagnar skipasmíði

Fyrirvara um fjármögnun við samning Eimskips um smíði á tveimur skipum hefur verið aflétt. Eimskip undirritaði samning um smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum við China Shipbuilding Trading Company Limited og Guangzhou Wenchong Shipyard Co. Ltd. hinn 25 janúar.

Samningsverð hvors skips nemur um 32 milljónum dollara og gert er ráð fyrir að skipin verði afhent á árinu 2019. Greiðslufyrirkomulag skipanna er að 40% af samningsverði er greitt á smíðatíma skipanna og 60% við afhendingu.

Eimskip hefur nú tryggt 80% fjármögnun af smíðavirði skipanna. Lánið er í evrum og er til 15 ára. Lánveitandinn er þýski bankinn KfW IPEX-Bank GmbH. Lánið er tryggt af China Export & Credit Insurance Corporation (Sinosure).

„Það er mjög gott að finna fyrir jákvæðni og trausti erlendra lánastofnana gagnvart Eimskip þar sem lánamarkaður fyrir skipafjármögnun hefur verið erfiður undanfarin misseri. Um er að ræða fjármögun til langs tíma á mjög hagstæðum kjörum,“ er haft eftir Gylfa Sigfússyni, forstjóra Eimskips í tilkynningu.

„Einnig er ánægjulegt að með þessu erum við að stíga mikilvægt skref í endurnýjun á skipaflota félagsins. Þessi gámaskip eru þau stærstu sem þjónað hafa Norður-Atlantshafi í reglulegum áætlanasiglingum og fyrirhugaðar stækkanir á höfnunum í Nuuk á Grænlandi, Reykjavík og Þórshöfn í Færeyjum munu gera þessum skipum kleift að þjóna þessum markaði.”

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK