Blöndustöð verðlaunuð fyrir sjálfbærni

Starfsfólk Landsvirkjunar með verðlaunin. Frá vinstri: Óli Grétar Blöndal Sveinsson, …
Starfsfólk Landsvirkjunar með verðlaunin. Frá vinstri: Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri, Guðmundur R. Stefánsson, stöðvarstjóri á Blöndusvæði, Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri og Sigurður Guðni Sigurðsson, deildarstjóri vatnsaflsdeildar.

Blöndustöð Landsvirkjunar hefur hlotið Blue Planet verðlaunin, sem Alþjóða vatnsaflssamtökin (International Hydropower Association, IHA) veita verkefnum sem skara framúr í sjálfbærri nýtingu vatnsafls í heiminum. Verðlaunin voru veitt á þingi samtakanna, sem haldið var í Addis Ababa í Eþíópíu.

Verðlaunin eru veitt á grundvelli hins alþjóðlega matslykils um sjálfbæra nýtingu vatnsafls (e. Hydropower Sustainability Assessment Protocol, HSAP), en úttekt á grundvelli hans var gerð á Blöndustöð árið 2013. Úttektin leiddi í ljós að rekstur Blöndustöðvar telst framúrskarandi hvað varðar sjálfbæra nýtingu vatnsafls og að á mörgum sviðum þykja starfsvenjur í Blöndustöð þær bestu sem fyrirfinnast.

Umfangsmikil úttekt

Í úttektinni, sem var mjög umfangsmikil og fór fram í Blöndustöð og á aðalskrifstofu Landsvirkjunar, voru teknir til nákvæmrar skoðunar 17 flokkar sem varða rekstur Blöndustöðvar og eiga að gefa mynd af því hversu vel starfsemin fellur að alþjóðlegum viðmiðum um sjálfbæra þróun. Sem dæmi um flokka má nefna samskipti og samráð, stjórnun á umhverfislegum og samfélagslegum þáttum, vatnsauðlindina, vinnuafl og vinnuaðstöðu, líffræðilegan fjölbreytileika og framandi tegundir ásamt rofi og setmyndun.

Niðurstöður úttektarinnar voru á þá leið að Blöndustöð uppfyllti kröfur um bestu mögulegu starfsvenjur (5 í einkunn af 5 mögulegum) í 14 flokkum af þeim 17 sem teknir voru til skoðunar. Í þremur flokkum uppfyllir Blöndustöð kröfur um góðar starfsvenjur (4 í einkunn af 5 mögulegum) og í hverjum þeirra er aðeins eitt frávik frá bestu mögulegum starfsvenjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK