Eyrir selur 3,5 milljarða hlut í Marel

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Eyrir Invest hf. hefur selt 10 milljón hluti í Marel hf. Eyrir Invest er langtímafjárfestir og hefur verið kjölfestufjárfestir í Marel síðan 2005. Eftir sem áður verður Eyrir stærsti hluthafi Marel með 25,9% af útgefnu hlutafé.

Í tilkynningu segir að viðskiptin auki fjárhagslegan styrk Eyris sem og sveigjanleika í rekstri. Hlutirnir voru seldir á verðinu 348 krónur á hlut. Nemur salan því um 3,5 milljörðum króna.

„Eyrir hefur mikla trú á möguleikum Marel til áframhaldandi vaxtar sem og getu félagsins til að skila góðri afkomu. Eyrir hyggst áfram vera kjölfestufjárfestir í Marel,“ segir í tilkynningu.

Eyrir Invest er langtímafjárfestir með þá stefnu að styðja við alþjóðleg iðnfyrirtæki og sprotafyrirtæki í vexti. Eyrir keypti nýlega ráðandi hluti í Efni ehf. en félögin munu vinna saman að því að byggja upp nýjar markaðs- og söluleiðir fyrir íslensk fyrirtæki sem eru að framleiða hágæðavörur og -þjónustu. Saman sjá þau fyrir sér að nýta nýjar aðferðir til að byggja upp söluleiðir gegnum netsölu og markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla.

Þá hefur Eyrir Invest nýverið keypt upp allan B-flokk eigin hlutabréfa. Fyrir aðalfundi félagsins, sem haldinn verður 12. maí, liggur fyrir tillaga stjórnar um frekari kaup á eigin hlutum fyrir rúmlega 1.700 milljónir króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK