Landsmenn gera vel við sig í mat og drykk

Velta dagvöruverslana í apríl jókst um 9,3% að nafnvirði frá sama mánuði í fyrra og um 12,6% að raunvirði. Skýringuna á þessari aukningu má að mestu rekja til þess að páskarnir voru í apríl síðastliðnum en ekki í samanburðarmánuðinum í fyrra - heldur í mars. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir þessum árstíðamun nemur veltuaukningin að raunvirði um 6,9%. Samkvæmt þessu er greinilegt að landsmenn gera betur við sig í mat og drykk en í fyrra. Verð á dagvöru er nú 2,9% lægra en fyrir ári samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar og fer lækkandi milli mánaða.

Þetta kemur fram á vef Rannsóknarseturs verslunnarinnar.

Þar segir einnig, að innlend fataverslun haldi áfram að dala þó að nokkur munur sé á milli einstakra verslanakeðja. Þar ráði nokkru að fataverslunum hafi fækkað. Þá sé líklegt að áhrif  tímasetningar páskanna hafi ekki sömu áhrif í árssamanburði og þegar horft sé til dagvöruverslana. Færri söludagar í apríl síðastliðnum en í samanburðarmánuðinum í fyrra hafi áhrif til lækkunar á veltu. Þá hafi landsmenn ferðast mikið til útlanda í apríl og kortavelta Íslending erlendis hafi einnig aukist umtalsvert, en sem kunnugt sé fari töluverður hluti fataverslunar Íslendinga fram erlendis.

Þá segir að verð í nánast öllum vöruflokkum hafi lækkað í árssamanburði. Þannig lækkaði til dæmis verð á svokölluðum brúnum raftækjum (sjónvörp, hljómtæki o.s.frv.), um 18% í apríl sl. frá apríl í fyrra samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar. Þó ber að hafa í huga að hugsanlegar gæðabreytingar á þessum vörutegundum kunna að torvelda verðsamanburð. Velta á þessum tegundum raftækja jókst um 28% að raunvirði á síðasta tólf mánaða tímabili. 

Þá lækkaði verð á rúmum um 8,3% og velta sérverslana með rúm jókst um 45,4% að raunvirði á tímabilinu.

Greiðslukortavelta íslenskra heimila hér innanlands nam 62,8 milljörðum kr. í apríl og 11,9 milljörðum í útlöndum. Útlendingar keyptu hins vegar hér á landi með kortum sínum fyrir 18,2 milljarða. Munurinn á því sem Íslendingar greiddu með kortum sínum erlendis og útlendingar greiddu hér á landi nam því 6,4 milljörðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK