Þórunn nýr formaður bankaráðs

Þórunn var fyrst kjörin í bankaráðið í mars 2015 í …
Þórunn var fyrst kjörin í bankaráðið í mars 2015 í stað Ólafar Nordal. Af vef Seðlabankans

Þórunn Guðmundsdóttir er nýr formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Hún var kjörin formaður á fyrsta fundi nýkjörins bankaráðs á föstudaginn. 

Þórunn var fyrst kjörin í bankaráðið í mars 2015 í stað Ólafar Nordal og tók Þórunn við hlutverki formanns í apríl það ár. Á fundinum á föstudag var Sveinn Agnarsson kjörinn varaformaður.

Aðrir í bankaráði eru Björn Valur Gíslason, Sigurður Kári Kristjánsson, Þór Saari, Frosti Sigurjónsson og Auður Hermannsdóttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK