2,9% atvinnuleysi fyrstu mánuði ársins

Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru …
Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 3.900 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 69,8% atvinnulausra. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 197.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 191.500 starfandi og 5.600 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82,7%, hlutfall starfandi mældist 80,4% og atvinnuleysi var 2,9%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Frá fyrsta ársfjórðungi 2016 fjölgaði starfandi fólki um 7.200 og hlutfallið jókst um 1,2 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 500 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.300 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,5%. Atvinnulausir karlar voru 3.300 eða 3,2%. Atvinnuleysi var 2,6% á höfuðborgarsvæðinu og 3,3% utan þess.

Af þeim sem voru atvinnulausir á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 3.900 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 69,8% atvinnulausra. Á fyrsta ársfjórðungi 2016 höfðu um 4.200 verið atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur sem þá var 69,2% atvinnulausra.

Á fyrsta ársfjórðungi 2017 höfðu 600 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur samanborið við 400 manns á fyrsta ársfjórðungi 2016. Langtímaatvinnuleysi, sem hlutfall af heildarfjölda atvinnulausra var 11,2% samanborið við 6,2% á sama tíma fyrir ári. Ef hlutfallið er tekið af öllum á vinnumarkaði voru 0,3% langtímaatvinnulausir samanborið við 0,2% árið áður.

Á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 176.700 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 92,3% starfandi fólks og 74,2% af heildarmannfjölda 16-74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 39,5 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,4 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 23 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK