Oddi og Icelandic Ibérica gerðu samning

Frá vinstri: Óskar G. Karlsson (Icelandic), Freyr Sigurðsson (Icelandic), Guðjón …
Frá vinstri: Óskar G. Karlsson (Icelandic), Freyr Sigurðsson (Icelandic), Guðjón Stefánsson (Oddi) og Bjarni Guðjónsson (Oddi). Ljósmynd/Aðsend

Fyrirtækið Oddi undirritaði í dag samstarfssamning um framleiðslu umbúða fyrir afurðir framleiddar á Íslandi til útflutnings fyrir Icelandic Freezing Plants Ibérica S.A., en umbúðir framleiddar hjá Odda koma nú í stað innfluttra umbúða áður. 

Í fréttatilkynningu segir að samningurinn falli vel að annarri framleiðslu Odda sem í dag framleiðir m.a. öskjur, kassa og plastumbúðir fyrir fjölbreyttar afurðir sjávarútvegsfyrirtækja og annan matvælaiðnað á Íslandi og erlendis.

Guðjón Stefánsson frá Odda og Freyr Sigurðsson ásamt Óskari G. Karlssyni frá Icelandic Ibérica undirrituðu samninginn í dag í höfuðstöðvum Odda.

Samningurinn ferlur í sér umbúðir fyrir rúmlega 10 þúsund tonn afurða sem fluttar eru út til Spánar frá Íslandi árlega.

„Að baki Icelandic Freezing Plants Ibérica S.A. standa öflug íslensk sjávarútvegsfyrirtæki sem hafa selt vörur til veitingastaða í Suður-Evrópu um árabil undir vörumerkinu „Icelandic Seafood“ og félagið er einn helsti sölu- og dreifingaraðili á léttsöltuðum þorski frá Íslandi ásamt ýmsu öðru sjávarfangi,“ segir í tilkynningunni.

Bjarni Guðjónsson, sölustjóri sjávarútvegsteymis Odda, segir mikla ánægju með samninginn við Icelandic Ibérica. „Við erum ákaflega ánægð með þetta samstarf sem fellur mjög vel að þróun og framleiðslu okkar á umbúðum fyrir sjávarútvegsafurðir undanfarin ár,“ segir hann í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK