Uppsagnir og breytingar hjá Íslandsbanka

Íslandsbanki.
Íslandsbanki. mbl.is/Hjörtur

Vegna skipulagsbreytinga mun starfsmönnum fækka um 20 hjá Íslandsbanka. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir í tilkynningu að verið sé að einfalda og aðlaga skipulag bankans að breyttu umhverfi.

„Það er öllum fyrirtækjum hollt að fara í gegnum skipulagsbreytingar og í því liggja fjölmörg tækifæri. Með þessum breytingum blæs bankinn til sóknar og treystir undirstöður fyrir aukna skilvirkni. Við hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við viðskiptavini okkar þar sem við munum einblína á enn betri þjónustu í nýju og einfaldara skipulagi,“ segir Birna.

Í tilkynningu frá bankanum segir, að nú muni þrjú tekjusvið þjóna viðskiptavinum; einstaklingar, viðskiptabanki og fyrirtæki og fjárfestar. Markmið breytinganna sé að sníða skipulag bankans að breyttum þörfum viðskiptavina og bjóða betri bankaþjónustu.  Breytingarnar muni jafnframt styrkja stöðu bankans með tilliti til umfangsmikilla breytinga á regluverki og örrar tækniþróunar.  

Enn fremur segir í tilkynningunni, að markmið breytinganna sé að sníða skipulag bankans að breyttum þörfum viðskiptavina og bjóða betri bankaþjónustu. Breytingarnar muni jafnframt styrkja stöðu bankans með tilliti til umfangsmikilla breytinga á regluverki og örrar tækniþróunar.  

„Hlutverk Einstaklingssviðs er að veita viðskiptavinum alhliða fjármálaþjónustu í gegnum rafrænar dreifileiðir og nútímalegt útibúanet um land allt. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir er nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka og mun leiða Einstaklingssvið bankans. Sigríður er lögmaður með MBA-próf frá Copenhagen Business School. Hún hefur starfað frá árinu 2014 sem framkvæmdastjóri smásölusviðs Olíuverzlunar Íslands.

Viðskiptabanki þjónustar lítil og meðalstór fyrirtæki í útibúum bankans, þar sem sérfræðingar í fyrirtækjaþjónustu veita alhliða fjármálaþjónustu. Ergo, fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka, er jafnframt hluti af Viðskiptabankasviði. Framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs er Una Steinsdóttir.

Á sviðinu Stór fyrirtæki og fjárfestar verður veitt heildstæð fjármálaþjónusta fyrir fjárfesta og stærstu fyrirtæki landsins sem felst meðal annars í lánveitingum, miðlun verðbréfa og gjaldeyris, fyrirtækjaráðgjöf, einkabankaþjónustu og sölu áhættuvarna. Framkvæmdastjóri sviðsins er Vilhelm Már Þorsteinsson.

VÍB eignastýring mun færast yfir á tekjusviðin og í dótturfélag bankans, Íslandssjóði. Jafnframt verður áherslubreyting á greiningarstarfi en áfram verður starfandi aðalhagfræðingur sem mun bera ábyrgð á þjóðhagsgreiningu bankans.

Vegna ofangreindra breytinga mun starfsmönnum fækka um 20,“ segir í tilkynningu bankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK