Fullyrðing Símans ekki villandi

Niðurstaða Neytendastofu var sú að Speedtest prófanir Ookla væru fullnægjandi …
Niðurstaða Neytendastofu var sú að Speedtest prófanir Ookla væru fullnægjandi sönnun fyrir fullyrðingunni og því væri Símanum heimilt að birta hana í auglýsingum.

Símanum var heimilt að birta slagorðið „Vertu með hraðasta farsímanetið á Íslandi“ í auglýsingaherferð þar sem vísað var til niðurstöðu hraðaprófunar fyrirtækisins Ookla samkvæmt ákvörðun Neytendastofu.

Neytendastofu barst kvörtun frá Vodafone yfir fullyrðingum Símans um stærsta farsímanetið. Vodafone taldi fullyrðinguna villandi og gerði einnig ýmsar athugasemdir við framkvæmd prófunarinnar sem fullyrðingin byggir á og við framsetningu í auglýsingunum. 

Niðurstaða Neytendastofu var sú að Speedtest prófanir Ookla væru fullnægjandi sönnun fyrir fullyrðingunni og því væri Símanum heimilt að birta hana í auglýsingum. Í ákvörðuninni kom líka fram að þó Síminn gæti birt fullyrðinguna yrði að gæta þess að hvar sem hún kæmi fram segði skilmerkilega að um væri að ræða niðurstöður Speedtest fyrir árið 2016. Taldi Neytendastofa að ef þær upplýsingar kæmu ekki fram gætu neytendur skilið hana sem svo að Síminn bjóði í öllum tilvikum upp á hraðasta farsímanetið. 

„Í gögnum málsins voru engar auglýsingar þar sem tilvísun til Speedtest 2016 kom ekki fram og þess vegna taldi Neytendastofa ekki ástæðu til að aðhafast frekar í málinu,“ segir á vef Neytendastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK