Skotkökur og skoteldar í sölubann

Við prófun á PPATA kom í ljós að hann breytti …
Við prófun á PPATA kom í ljós að hann breytti um stefnu þegar honum var skotið á loft. Þá var efni sem féll af skoteldinum eftir að honum var skotið á loft þyngra en leyfileg mörk samkvæmt staðli eru. Mynd úr safni. mbl.is/Ófeigur

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um sölubann á tveimur skotkökum og þremur skoteldum sem flutt voru til landsins af fyrirtækjunum Stjörnuljós ehf. og E-þjónustunni.

Skotkökurnar Stormur og Litríkar þrumur voru fluttar til landsins gegnum Stjörnuljós ehf. en við prófun kom í ljós að kveikurinn á skotkökunni Litríkum þrumum var of lengi að kveikja á sér.

„Alvarleg hætta er fólgin í því að fólk telur að ekki hafi kviknað í skotkökunni og snýr aftur að kökunni sem þá tekur að springa. Auk þess kom í ljós að þrjár af hverjum 10 kökum voru ekki nægilega stöðugar og gat kakan jafnvel oltið á hliðina. Þá var galli í hönnun á skotkökunni STORMUR,“ segir á vef Neytendastofu en prófunin og skoðun Neytendastofu er hluti af samevrópsku átaksverkefni um öryggi skotelda. 

Þá eru flugeldurinn PPATA, skotkakan Secret Gift og stjörnuljósin Gold Sparklers komin í sölubann en vörurnar voru fluttar inn af E-þjónustunni.

Við prófun á PPATA kom í ljós að hann breytti um stefnu þegar honum var skotið á loft. Þá var efni sem féll af skoteldinum eftir að honum var skotið á loft þyngra en leyfileg mörk samkvæmt staðli eru. „Alvarleg hætta er fólgin í því ef að flugeldur fer ekki í rétta stefnu,“ segir á vef Neytendastofu.

„Við prófun á skotkökunni kom í ljós að kveikurinn var of lengi að kveikja á sér, kakan var ekki nógu stöðug eftir að búið var að kveikja á henni, hún fór ekki eins hátt og hún átti að gera auk þess sem að hvellurinn var yfir hávaðamörkum. 

Stjörnuljósin stóðust prófun en þar sem að þau voru ekki CE-merkt er ekki leyfilegt að setja þau aftur í sölu um næstu áramót þar sem frá og með næstu áramótum eiga allir flugeldar að vera CE-merktir.“

Prófunin og skoðun Neytendastofu er hluti af samevrópsku átaksverkefni um öryggi skotelda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK