Alvogen kaupir rússneskt lyfjafyrirtæki

„Rússland er einn af okkar sterkustu mörkuðum og við höfum …
„Rússland er einn af okkar sterkustu mörkuðum og við höfum jafnt og þétt verið að styrkja okkar stöðu þar. Lyfjasafn Omega Bittner er hrein viðbót við sölustarfsemi okkar í Rússlandi og eykur samkeppnisstöðu okkar á markaðnum enn frekar,“ er haft eftir Róberti. Aðsend mynd

Alvogen tilkynnti í dag um kaup á rússneska lyfjafyrirtækinu Omega Bittner. Fyrirtækið hefur sterka stöðu í sölu lausasölulyfja í Rússlandi og er góð viðbót við lyfjasafn Alvogen á markaðnum. Omega Bittner var áður í eigu bandaríska lyfjafyrirtækisins Perrigo en um 80 manns starfa hjá fyrirtækinu í Rússlandi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Þar er vitnað í Róbert Wessman forstjóra Alvogen sem segir að góð vaxtartækifæri séu fyrir Alvogen í Rússlandi.

„Rússland er einn af okkar sterkustu mörkuðum og við höfum jafnt og þétt verið að styrkja okkar stöðu þar. Lyfjasafn Omega Bittner er hrein viðbót við sölustarfsemi okkar í Rússlandi og eykur samkeppnisstöðu okkar á markaðnum enn frekar,“ er haft eftir Róberti.

Starfsemi Alvogen nær til 35 landa og hjá félaginu starfa um 2,800 starfsmenn. Helstu markaðssvæði fyrirtækisins í Mið- og Austur-Evrópu eru Rússland, Rúmenía, Ungverjaland, Úkraína og Búlgaría.

Á Íslandi starfa um 230 vísindamenn á vegum systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech í nýju hátæknisetri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK