Heimir nýr þjónustustjóri Optimar Kapp

Heimir Halldórsson nýr þjónustustjóri Optimar Kapp.
Heimir Halldórsson nýr þjónustustjóri Optimar Kapp. Ljósmynd/Optimar Kapp

Heimir Halldórsson hefur verið ráðinn þjónustustjóri Optimar Kapp. Heimir hefur starfað hjá fyrirtækinu í vel á annan áratug og gegndi m.a. stöðu tæknistjóra.

Optimar Kapp framleiðir OPTIM-ICE-ískrapavélar sem hafa verið settar upp í fjölda skipa, bæði hér á landi og erlendis.

„Þetta er spennandi tækifæri í ört vaxandi fyrirtæki. Við framleiðum OPTIM-ICE-ísþykknikerfin sem eru með bestu kæliaðferðum sem fyrirfinnast á markaðnum í dag. Það er mikil reynsla og þekking hér innanhúss í þessum geira og ætlunin hjá fyrirtækinu er að auka enn frekar á þjónustuna fyrir viðskiptavini okkar,“ er haft eftir Heimi í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

28 starfsmenn eru hjá Optimar Kapp, sem er með höfuðstöðvar í Garðabæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK