Icelandair hefur heilsársflug til Berlínar

Flogið verður á föstudegi, sunnudegi og mánudegi fyrst um sinn, …
Flogið verður á föstudegi, sunnudegi og mánudegi fyrst um sinn, en gert er ráð fyrir að fjölga ferðum enn frekar næsta sumar. Berlín verður 47. áfangastaðurinn í leiðakerfi Icelandair.

Icelandair mun 3. nóvember nk. hefja beint flug til Tegel flugvallar í Berlín allan ársins hring. Flogið verður þrisvar í viku til að byrja með en sala farmiða hefst fimmtudaginn 24. ágúst.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Flogið verður á föstudegi, sunnudegi og mánudegi fyrst um sinn, en gert er ráð fyrir að fjölga ferðum enn frekar næsta sumar. Berlín verður 47. áfangastaðurinn í leiðakerfi Icelandair.

„Berlín er fjórði áfangastaður okkar í Þýskalandi, auk Frankfurt, Munchen og Hamborgar, og mun styrkja leiðarkerfi okkar yfir Atlantshafið með því að bjóða farþegum upp á þægilega tengingu á milli Evrópu og Norður-Ameríku,“ er haft eftir Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair. „Berlín er stærsta borg Þýskalands og býr yfir merkilegri sögu, fjölbreyttu menningarlífi og líflegu næturlífi. Borgin hefur lengi verið vinsæl meðal Íslendinga, bæði til búsetu og heimsóknar, enda finna allir eitthvað sitt við hæfi þar. Það er því ánægjulegt að geta þjónustað þá landa okkar sem þangað sækja og við erum stolt af því að geta nú boðið bestu upplifunina í flugi milli Berlínar og Íslands,“ er haft eftir Birki.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK