Viðskiptaafgangur helmingast milli ára

Seðlabanki Íslands heldur utan um tölur um milliríkjaviðskipti.
Seðlabanki Íslands heldur utan um tölur um milliríkjaviðskipti. mbl.is/Ófeigur

Á öðrum ársfjórðungi 2017 var 16,3 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd og dregst hann saman um helming miðað við sama ársfjórðung á síðasta ári.

Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands sem sýna bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð á öðrum ársfjórðungi 2017 og stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Halli á vöruskiptajöfnuði var 45,8 milljarðar en afgangur á þjónustujöfnuði1 60,5 milljarðar. Þá skiluðu frumþáttatekjur 6,8 milljarða afgangi en rekstrarframlög 5,1 milljarða halla.

Samkvæmt bráðabirgðayfirlitinu námu erlendar eignir þjóðarbúsins 3.494 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins en skuldir 3.556 milljörðum. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 62 milljarða eða sem nam 2,5% af vergri landsframleiðslu og lækkaði um 142 milljarða. eða sem nam 5,7% af VLF á milli ársfjórðunga.

Hrein fjármagnsviðskipti leiddu til verri erlendrar stöðu þjóðarbúsins um 4 milljarða króna. Skuldir lækkuðu um 113 milljarða og erlendar eignir um 117 milljarða vegna fjármagnsviðskiptanna.

Gengis- og verðbreytingar höfðu neikvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins um sem nam 139 milljörðum. Munar þar mestu um verðlækkun á eignum sem falla undir beina fjárfestingu. Gengi krónunnar hækkaði á öðrum ársfjórðungi gagnvart helstu gjaldmiðlum um 4,8% miðað við gengisskráningarvog. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK