Halldóra í raðir Landsbankans

Halldórs Vífilsdótti mun vinna að undirbúningi nýbyggingar Landsbankans.
Halldórs Vífilsdótti mun vinna að undirbúningi nýbyggingar Landsbankans. Ljósmynd/Aðsend

Halldóra Vífilsdóttir arkitekt hefur gengið til liðs við Landsbankann og mun hún starfa í teymi sem vinnur að undirbúningi nýbyggingar bankans við Austurhöfn í Reykjavík. 

Halldóra lauk BA-námi í arkitektúr frá Háskólanum í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum árið 1994, hún útskrifaðist með meistaragráðu í arkitektúr frá Tækniháskólanum í Helsinki árið 1997 og stundaði nám á meistarastigi í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2010.

Eftir útskrift árið 1994 vann Halldóra meðal annars sem arkitekt, hönnunarstjóri og framkvæmdastjóri auk þess sem hún hefur sinnt stundakennslu í framkvæmdafræði við Háskóla Íslands. Halldóra hóf störf sem verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslu ríkisins árið 2010 og var skipuð aðstoðarforstjóri stofnunarinnar í ágúst 2012. Hún hefur verið forstjóri Framkvæmdasýslunnar frá nóvember 2014 og lætur af því starfi í lok nóvember og verður í fullu starfi hjá bankanum frá og með 1. desember næstkomandi.

Halldóra hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum en hún var m.a. formaður nefndar menntamálaráðherra sem falið var að koma með tillögur að stefnu stjórnvalda í mannvirkjagerð. Hún tók einnig þátt í að móta gæðastefnu Reykjavíkurborgar á sviði manngerðs umhverfis.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK