Gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands hefur lækkað talsvert frá opnun markaða í morgun. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,28% og stendur í 1.653,19 þegar þetta er skrifað.
Mesta lækkunin er með hluti HB Granda sem hafa lækkað um 5,85% en þar á eftir kemur Fasteignafélagið Eik sem hefur lækkað um 4,23%. Þá hafa hlutabréf Vátryggingafélags Íslands lækkað um 3,77%.