Fjögur tilboð í bæjarskrifstofurnar

Fasteignirnar að Fannborg 2,4 og 6 hafa hýst bæjarstjórnarskrifstofurnar.
Fasteignirnar að Fannborg 2,4 og 6 hafa hýst bæjarstjórnarskrifstofurnar. Ljósmynd/Kópavogsbær

Fjögur tilboð bárust Kópavogsbæ í tengslum við sölu á fasteignum bæjarins í Fannborg sem áður hýstu skrifstofur bæjarins.  

Greint var frá því í byrjun ágúst að Kópavogsbær flytti bæjarskrifstofurnar úr Fann­borg 2, 4 og 6 að Digra­nes­vegi 1.

Í kjölfarið auglýsti bærinn fast­eign­ir í Fann­borg til sölu og lýs­ti eft­ir áhuga þró­un­ar­fé­laga, fjár­festa, bygg­ing­ar­fé­laga og annarra á kaup­um á eign­un­um. Var þeim gert að skila tilboðum eigi síðar en fimmtudaginn 12 október. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK