Tekur við eignastýringu Kviku

Hannes Frímann Hrólfsson verður framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku.
Hannes Frímann Hrólfsson verður framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku. mbl.is/Árni Sæberg

Kvika banki hefur endanlega gengið frá kaupum á Öldu sjóðum en tilkynnt var um undirritun kaupsamnings vegna Öldu í byrjun ágúst. Þá hefur Hannes Frímann Hrólfsson látið af störfum sem forstjóri Virðingar og tekið við sem framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku banka. Kvika gerði nýverið samninga um kaup á öllu hlutafé í Virðingu hf. og mun Virðing sameinast Kviku á næstu vikum. Þar til sameiningin hefur gengið í gegn mun Íris Arna Jóhannsdóttir, sem verið hefur yfirlögfræðingur Virðingar, gegna starfi forstjóra Virðingar. 

Hannes hefur starfað á fjármálamarkaði í hátt í tvo áratugi. Hann hefur verið forstjóri Virðingar frá 2014 en áður starfaði hann hjá Auði Capital frá 2012, lengst af sem forstjóri. Fyrir þann tíma starfaði Hannes hjá Arion banka og var framkvæmdastjóri og meðstofnandi Tinda verðbréfa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK